Sigurbjörg Einarsdóttir (Litlabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Einarsdóttir í Litlabæ, vinnukona í Nýborg, fæddist 10. ágúst 1862.
Foreldrar hennar voru Valgerður Jónsdóttir og Einar Jónsson frá Dölum, sjávarbóndi, f. 1815, d. 13. mars 1894.

Sigurbjörg var 8 ára með foreldrum sínum í Litlabæ 1870 og 1880. Valgerður móðir hennar og hálfsystir hennar, Guðríður Woolf (Vigfússon) og fjölskylda hennar, fóru til Vesturheims 1886. Sigurbjörg fór vestur 1889, vinnukona frá Nýborg.
Hún tók mormónatrú, en afneitaði henni síðar.
Þau Ólafur bjuggu lengi í Spanish Fork, þar sem hann stundaði málaraiðn sína, en fluttust síðan til Blaine í Washington-fylki.

Maður Sigurbjargar var Ólafur Eiríksson frá Brúnum Ólafssonar, listfengur málari.
Börn þeirra voru:
1. Annie.
2. Olinna.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.