Sigurbára Sigurðardóttir (Vegbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurbára Júlía Sigurðardóttir.

Sigurbára Júlía Sigurðardóttir frá Háarima í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja fæddist þar 31. júlí 1921 og lést 3. september 2017.
Foreldrar hennar voru Sigurður Guðnason bóndi, f. 20. desember 1873 í Ytri-Hól í V.-Landeyjum, d. 23. júní 1921 í Háarima, og kona hans Guðfinna Sveinsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1875 í Vatnskoti í Djúpárhreppi, d. 18. desember 1961 í Háarima.

Sigurbára fæddist eftir lát föður síns. Hún var með bóndanum móður sinni í Háarima til 1927 og síðan með Guðna bróður sínum og var þar enn 1937.
Hún vann síðar við ræstingar í Barnaskólanum.
Þau Georg giftu sig 1939 í Holti u. A.-Eyjafjöllum og fluttu til Eyja. Þau eignuðust átta börn. Þau bjuggu í fyrstu á Reykjum við Vestmannabraut 54, þá í Langa-Hvammi við Kirkjuveg 41, síðan í Steinholti við Kirkjuveg 9a , en keyptu hluta af Vegberg við Skólaveg 32 árið 1945, allt húsið síðar og bjuggu þar síðan.
Georg lést 1988. Sigurbára dvaldi að síðustu í Hraunbúðum. Hún lést 2017.

I. Maður Sigurbáru, (19. maí 1939), var Georg Skæringsson verkamaður, smiður, síðast húsvörður, f. 30. ágúst 1915 að Rauðafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. mars 1988 á Vífilsstöðum.
Börn þeirra:
1. Kristín Georgsdóttir húsfreyja, umboðsmaður, f. 14. nóvember 1939. Maður hennar Ólafur Oddur Sveinbjörnsson, látinn.
2. Sigurður Georgsson skipstjóri, f. 1. mars 1941. Kona hans Guðný Fríða Einarsdóttir.
3. Þráinn Einarsson skrifstofustjóri, f. 20. nóvember 1942. Kona hans Svava Sigríður Jónsdóttir. Hann varð kjörsonur Einars Skæringssonar og Guðríðar Konráðsdóttur.
4. Skæringur Georgsson húsasmiður, skrifstofumaður, f. 2. maí 1944. Kona hans Sigrún Óskarsdóttir.
5. Vignir Georgsson stúdent, f. 6. maí 1946, d. 25. apríl 1968.
6. Guðfinna Georgsdóttir húsfreyja, f. 1. apríl 1950. Fyrrum maður hennar Óskar Kristinsson.
7. Sigmar Georgsson verslunarstjóri, f. 1. apríl 1950. Kona hans Edda Angantýsdóttir.
8. Ingimar Heiðar Georgsson bifreiðastjóri, kaupmaður, f. 12. maí 1960. Kona hans Hjördís Inga Arnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 7. september 2017. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.