Sigurður Jónatansson (Stórhöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sigurður Jónatansson)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Valdimar Jónatansson fæddist 3. desember 1897 og lést 4. maí 1966. Foreldrar hans voru Jónatan Jónsson og Guðfinna.

Sonur Sigurðar var Óskar Jakob Sigurðsson

Sigurður var vitavörður í Stórhöfðavita frá 1935 til 1965.


Heimildir

  • gardur.is

Frekari umfjöllun

Sigurður Valdimar Jónatansson verkamaður, vitavörður á Stórhöfða fæddist 3. desember 1897 að Gerðakoti í Mýrdal og lést 4. maí 1966.
Foreldrar hans voru Jónatan Jónsson vitavörður í Stórhöfða, f. 3. október 1857, d. 10. apríl 1939, og kona hans Guðfinna Þórðardóttir húsfreyja, f. 4. september 1875, d. 30. nóvember 1959.

Börn Jónatans og Guðfinnu voru:
1. Sigurður Valdimar, f. 3. desember 1897 að Gerðakoti í Mýrdal, d. 4. maí 1966.
2. Guðjón Oktavíus, f. 23. október 1898, d. 10. júní 1900.
3. Gunnar Þórarinn, f. 21. nóvember 1899 að Garðakoti, d. 28. janúar 1999.
4. Sigríður, f. 6. nóvember 1903 að Garðakoti, d. 16. mars 1994.
5. Hjalti Guðmundur, f. 22. febrúar 1910 í Reykjavík, d. 29. október 2004.
Barn Jónatans og Guðrúnar Eiríksdóttur frá Vilborgarstöðum, f. 21. maí 1848, d. 25. nóvember 1927 var
5. Guðný Jónatansdóttir, f. 4. október 1881. Hún fór til Utah með móður sinni 1886.
Barn Jónatans og Helgu Jónsdóttur, síðar húsfreyju á Brekku, f. 4. mars 1864, d. 17. janúar 1946, síðar konu Kristjáns Gunnarssonar:
6. Jónatan Guðni Jónatansson bóndi á Litlu-Heiði í Mýrdal, f. 30. apríl 1894, d. 6. júlí 1987.

Sigurður var með foreldrum sínum í Garðakoti til 1908, í Reykjavík 1908-1910.
Hann flutti með þeim að Stórhöfða 1910, var verkamaður, síðan vitavörður eftir föður sinn til 1965, er Óskar sonur hans tók við.

I. Kona hans, (29. mars 1922), var Jakobína Þórunn Árnadóttir vinnukona, húsfreyja, f. 19. apríl 1895 í Narfakoti á Vatnsleysuströnd, d. 23. október 1930.
Þau voru barnlaus.

II. Kona Sigurðar var Björg Sveinsdóttir frá Hofi í Álftafirði, S-Múl., f. 6. maí 1911, d. 19. júní 1964.
Börn þeirra:
1. Óskar Jakob Sigurðsson, f. 19. nóvember 1937 í Stórhöfða.
2. Erla Kristín Sigurðardóttir, f. 21. ágúst 1943 í Stórhöfða.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.