Sigurður Guðlaugsson (Rafnseyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Guðlaugsson frá Rafnseyri við Kirkjuveg 15B, hárskeri í Keflavík og Reykjavík fæddist 19. júlí 1918 á Rafnseyri og lést 3. júlí 1958.
Foreldrar hans voru Sigurður Ólafsson frá Gularáshjáleigu í A-Landeyjum, sjómaður, f. 11. desember 1879, d. 18. nóvember 1918, og kona hans Margrét Þorsteinsdóttir frá Árgilsstöðum í Hvolhreppi, húsfreyja, f. 24. september 1876, d. 8. nóvember 1952.
Hann varð kjörsonur Guðlaugs Sigurðssonar, síðari manns Margrétar.

Barn Margrétar fyrir hjónaband:
1. Ólafur Ragnar Sveinsson heilbrigðisfulltrúi á Flötum, f. 25. ágúst 1903, d. 2. maí 1970. Kona hans Kristjana Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Börn Margrétar og Sigurðar voru:
2. Ólafía Þórunn Sigurðardóttir verkakona, f. 12. júní 1906 í Landeyjum, bjó síðast að Laufási 7 í Garðabæ, d. 9. febrúar 1990, ógift.
3. Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907 í Garðbæ, d. 27. júlí 1992. Barnsfaðir Ólafur Jónsson. Maður hennar Sigurlás Þorleifsson.
4. Bogi Óskar Sigurðsson kvikmyndasýningamaður, f. 12. desember 1910 í Garðbæ, d. 14. mars 1980. Kona hans Sigurlaug Auður Eggertsdóttir.
5. Fanney Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. janúar 1912 í Garðbæ. Maður hennar Guðmundur Pálsson.
6. Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir, f. 7. maí 1915 á Rafnseyri, d. 14. maí 1987. Maður hennar Friðrik Þórarinn Gunnlaugsson.
7. Sigríður Þórhildur Sigurðardóttir, f. 6. nóvember 1916 á Rafnseyri, d. 26. maí 1971. Barnsfaðir Gústaf Adolf Valdimarsson. Maður hennar Kjartan Guðmundsson.
8. Sigurður Guðlaugsson hárskeri, f. 19. júlí 1918, d. 3. júlí 1958. Hann var kjörsonur Guðlaugs Sigurðssonar, síðari manns Margrétar. Kona hans Kristín Guðmundsdóttir.
Fósturdóttir Margrétar og Guðlaugs var systurdóttir hans
9. Sigurbjörg Guðmundína Alda Friðjónsdóttir, f. 19. janúar 1926 í Götu. Hún var fósturbarn hjá Guðlaugi 1934, d. í febrúar 1985.

Faðir Sigurðar lést, er drengurinn var 4 mánaða gamall.
Hann var með móður sinni og síðan henni og Guðlaugi stjúpföður sínum, sem ættleiddi drenginn.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1938.
Sigurður lærði hárskeraiðn, starfaði í Eyjum um skeið, bjó síðan í Reykjavík og Ytri-Njarðvík.
Þau Kristín Guðríður giftu sig 1939, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Fífilgötu 3 1939, í Bifröst við Bárustíg 11 1940, en fluttu til lands 1941. Þau bjuggu síðast á Austurgötu 20 í Keflavík.
Sigurður lést 1958.
Kristín bjó síðast á Snorrabraut 56 í Reykjavík. Hún lést 2012.

I. Kona Sigurðar, (11. nóvember 1939 í Eyjum), var Kristín Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 21. apríl 1919, d. 30. apríl 2012.
Börn þeirra:
1. Kolbrún Sigurðardóttir húfreyja, kennari, forstöðumaður, f. 2. mars 1940 á Fífilgötu 3 í Eyjum. Maður hennar Hjálmar Vilhjálmsson.
2. Guðlaugur Sigurðsson matreiðslumaður, f. 29. júlí 1945 í Reykjavík. Kona hans Alda Björk Skarphéðinsdóttir.
3. Valgerður Sigurðardóttir læknir, f. 27. apríl 1952 í Reykjavík. Sambúðarmaður hennar Ágúst Ólafur Georgsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra, IV. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.