Sigurður Guðmundsson (smiður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Guðmundsson frá Uppsölum, verkamaður, smiður fæddist 29. maí 1900 og lést 2. desember 1984.
Foreldrar hans voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður, f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar hér:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Sigurður var með foreldrum sínum á Leirum 1901, var niðursetningur í Ytri-Skógum 1910. Hann fluttist þaðan til Eyja 1917.
Hann var með foreldrum sínum í Uppsölum 1927, bjó með Jónínu Margréti og Fjólu í Háaskála, (Brekastíg 11B) 1930, Hásteinsvegi 43 1934.
Þau fluttust úr Eyjum snemma á 4. áratugnum og settust að á Skagaströnd. Sigurður var smiður í Laufási þar.

Kona hans, (1928), var Jónína Margrét Björnsdóttir húsfreyja, f. 9. apríl 1904 á Syðri-Hóli á Skagaströnd, d. 11. september 1993.
Barn þeirra:
1. Fjóla Sigurðardóttir, f. 25. september 1929 í Eyjum, d. 15. júní 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.