Sigríður Ingibjörg Eyvindsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Ingibjörg Eyvindsdóttir fæddist 26. ágúst 1913 á Oddsstöðum og lést 20. mars 1933.
Foreldrar hennar voru Eyvindur Þórarinsson formaður, hafnsögumaður, f. 13. apríl 1892, d. 25. ágúst 1964, og kona hans Sigurlilja Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21. desember 1891, d. 19. október 1974.

Börn Eyvindar og Sigurlilju voru:
1. Sigríður Ingibjörg, f. 26. ágúst 1913 á Oddsstöðum, d. 20. mars 1933.
2. Hans Ottó, f. 17. október 1914 á Oddsstöðum, d. 13. nóvember 1914.
3. Hans Björgvin, f. 14. júní 1916 á Fögrubrekku, d. 15. nóvember 1916.
4. Elías Þórarinn, f. 14. júní 1916 á Fögrubrekku, d. 16. marz 1980.
5. Guðný Laufey, f. 19. desember 1917 á Strandbergi, d. 1. desember 1987.
6. Guðfinna Sigurlilja, f. 3. desember 1921 á Strandbergi, d. 21. maí 2013.
7. Jóna Sigríður, f. 17. ágúst 1923 á Fögrubrekku, d. 17. febrúar 1927.
8. Þórarinn Guðlaugur, f. 11. október 1925 í Eyvindarholti, d. 26. nóvember 1976.

Sigríður Ingibjörg var öryrki frá fæðingu. Hún var með fjölskyldu sinni á Oddsstöðum 1913 og 1914, á Fögrubrekku 1915 og 1916, á Strandbergi 1917 og enn 1922, á Fögrubrekku 1923, í Eyvindarholti, (Blómsturvöllum, Brekastíg 7c) 1924 og enn 1927, í Vestmannabraut 67, (Nýja Bergholti) 1930.
Sigríður Ingibjörg lést 1933 ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.