Sigríður Guðmundsdóttir (Hofsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30) fæddist 18. apríl 1891 í Eystrabæliskoti u. Eyjafjöllum og lést 16. september 1988.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson bóndi, verkamaður í Uppsölum f. 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 29. júní 1950, og kona hans Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 27. janúar 1930.

Börn Guðmundar og Guðrúnar voru:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.

Sigríður var með foreldrum sínum á Leirum 1901, var vinnukona í Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum 1910.
Hún fluttist til Eyja 1919, var vinnukona í Ásbyrgi 1920, var með foreldrum sínum í Uppsölum 1924 og 1925.
Þau Sigurður giftust 1928 og bjuggu á Hofsstöðum, (Brekastíg 30).
Þau voru barnlaus.

Maður hennar, (24. nóvember 1928), var Sigurður Árnason verkamaður, sjómaður, f. á Karlsstöðum í Reyðarfirði 28. mars 1897, d. 1. september 1982.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.