Sigríður Eyjólfsdóttir Ottesen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja í Stakkahlíð fæddist 5. janúar 1861 á Efri-Grímslæk í Ölfusi og lést 28. apríl 1942.
Foreldrar hennar voru Eyjólfur Eyjólfsson bóndi, f. 2. janúar 1827, d. 23. nóvember 1912, og kona hans Kristrún Þórðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1835, d. 17. mars 1894.

Við manntal 1890 var Sigríður húsfreyja í Ingvarshúsi í Útskálasókn með Valdimari og börnunum Ólafi Ásbirni og Oddi Stefáni.
Þau hjón bjuggu í Reykjavík 1891-1908. Við manntal 1910 var fjölskyldan í Stakkahlíð í Eyjum og nú höfðu bæst við Eyjólfur Bjarni, Sigríður Guðbjörg, og Elsa Ásta, en Oddur Stefán er horfinn, - lést 1904.
Eftir að þau eignuðust Þingvelli bjuggu þau þar á þakhæðinni.

Maður Sigríðar Eyjólfsdóttur var Þorkell Valdimar Stefánsson Ottesen kaupmaður, f. 11. apríl 1868, d. 13. nóvember 1918.
Börn Sigríðar og Valdimars voru:
Oddur Stefán Ottesen, f. 1889, d. 1904.
Ólafur Ásbjörn Ottesen, f. 9. apríl 1890, d. 9. apríl 1921.
Eyjólfur Bjarni Ottesen, f. 22. október 1891, d. 17. febrúar 1957.
Sigríður Guðbjörg Valdimarsdóttir Ottesen, f. 17. mars 1893, d. 2. júlí 1974.
Elsa Ásta Ottesen, f. 23. september 1898.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.