Sigríður Bjarnadóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 25. janúar 1814 á Miðhúsum og lést 25. september 1857.
Foreldrar hennar voru Bjarni Björnsson bóndi á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827 og kona hans Halldóra Pétursdóttir húsfreyja, f. 1774, d. 1. maí 1822.
Sigríður var með foreldrum sínum á Miðhúsum 1816, vinnukona á Oddsstöðum 1835, húsfreyja í Kornhól 1845 og 1850 og 1855, d. fyrir manntal 1860.

Maður Sigríðar, (19. október 1838), var Helgi Jónsson bóndi og formaður í Kornhól, f. 9. júlí 1806 á Eystri-Klasbarði í V-Landeyjum og lést 17. júní 1864, drukknaði.

Börn þeirra Helga:
1. Ingvar Helgason, f. 10. ágúst 1840, d. 18. ágúst 1840 úr ginklofa.
2. Kristín Helgadóttir, f. 26. júní 1842 í Dölum, d. 10. júlí 1842 úr ginklofa.
3. Bjarni Helgason, f. 30. ágúst 1844, d. 3. júlí 1869.
4. Árni Helgason, f. 4. september 1848. Hann fór til Vesturheims 1886.
5. Jónas Helgason, síðar í Nýjabæ f. 26. september 1851, d. 15. apríl 1914.
Barn Helga frá fyrra hjónabandi og stjúpdóttir Sigríðar var
6. Helga Helgadóttir, f. 12. apríl 1836, d. 29. desember 1914.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.