Salgerður Jónsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Salgerður Jónsdóttir vinnukona á Kirkjubæ og í Hólshúsi fæddist 28. desember 1869 á Litlu-Hólum í Mýrdal og lést 25. janúar 1894.
Faðir hennar var Jón bóndi á Ketilsstöðum, síðar á Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1829, d. 20. mars 1871, Þorkelsson bónda á Hryggjum í Mýrdal 1835, f. 25. apríl 1801, d. 24. mars 1862, Runólfssonar húsmanns í Rofabæ 1801, f. 1767, Hávarðssonar og konu Runólfs í Rofabæ, Ragnhildar húsfreyju, f. 1733, Ólafsdóttur.
Móðir Jóns á Ketilsstöðum og kona Þorkels á Hryggjum var Þórunn húsfreyja frá Brekkum í Mýrdal, f. 20. október 1791, d. 8. febrúar 1870, Sveinsdóttir bónda á Brekkum 1801, f. 1758, d. 20. október 1838, Eyjólfssonar og konu Sveins Guðrúnar húsfreyju, f. 1760, Þóðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur í Árbæ í Holtum Kortssonar.

Móðir Salgerðar og kona Jóns á Ketilsstöðum var Ingiríður húsfreyja, f. 2. nóvember 1832, d. 18. janúar 1913 í Norðurgarði, Einarsdóttir bónda á Giljum í Mýrdal 1835, f. 1790, d. 3. júní 1866, Jónssonar bónda á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnssonar, og konu Jóns á Brekkum, Vilborgar húsfreyju, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttur.
Móðir Ingiríðar Einarsdóttur og kona Einars á Giljum var Salgerðar húsfreyja, f. 1789 í Eyjum, d. 10. júní 1862 á Ketilsstöðum, Bjarnadóttir bónda á Skíðbakka í A-Landeyjum, síðast í Hrúðurnesi í Leiru, Gull., f. 20. maí 1766 á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, d. 25. júlí 1826 í Hrúðurnesi, Guðmundssonar, og konu Bjarna á Skíðbakka, Guðrúnar húsfreyju, úr Eyjum, f. 1765, d. 10. júní 1836, Björnsdóttur.

Systkini hennar í Eyjum voru:
1. Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 28. febrúar 1855, mun hafa látist í Utah. Maður hennar var Jón Jónsson húsmaður.
2. Einar Jónsson bóndi og sjómaður í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937, kvæntur Árnýju Einarsdóttur.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 27. mars 1862, d. 14. janúar 1939, kona Arngríms Sveinbjörnssonar.
4. Bjarni Jónsson í Norðurgarði, bóndi og málari í Utah, f. 19. apríl 1863.
5. Þorkell Jónsson bóndi á Gjábakka, f. 1. október 1867. Hann fluttist til Vesturheims. Kona hans var Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1864.

Salgerður var með foreldrum sínum á Litlu-Hólum til 1871, með móður sinni á Haugnum í Mýrdal 1871-1875, í Pétursey 1875-1879. Þá fóru þær að Kirkjulandshjáleigu í Landeyjum. Þaðan kom Salgerður að Kirkjubæ til Vilborgar systur sinnar 1882 og dvaldi með henni og Jóni mági sínum uns þau fluttust úr landi.
Salgerður var vinnukona í Frydendal 1887 og 1888.
Hún fluttist til Reykjavíkur 1889 tvítug að aldri.
Salgerður lést 1894.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.