Rut Ágústsdóttir (Varmahlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rut Ágústsdóttir frá Varmahlíð, húsfreyja fæddist 13. september 1920 í Sjólyst og lést 13. september 1989.
Foreldrar hennar voru Ágúst Jónsson útgerðarmaður, formaður, vélstjóri, trésmiður, f. 5. ágúst 1891, d. 1. desember 1969, og k.h. Pálína Eiríksdóttir húsfreyja, f. 10. apríl 1895, d. 13. janúar 1983.

Börn Pálínu og Ágústs:
1. Rut Ágústsdóttir, f. 13. september 1920, d. 13. september 1989.
2. Auður Ágústsdóttir, f. 24. júní 1922, d. 6. júlí 1963.
3. Sara Ágústsdóttir, f. 25. mars 1925, d. 16. janúar 1948.
4. Marta Ágústsdóttir, f. 29. júní 1928.
5. Hafsteinn Ágústsson, f. 1. nóvember 1929, d. 21. apríl 2016.
6. Lárus Ágústsson, f. 25. júlí 1933, d. 29. apríl 2014.
7. Þyrí Ágústsdóttir, f. 7. desember 1934, d. 10. desember 1971.
8. Arnar Ágústsson, f. 13. september 1936, d. 12. janúar 1997.
9. Eiríka Ágústsdóttir, f. 3. júní 1938, d. 29. nóvember 1943.

Rut var með foreldrum sínum í æsku.
Hún eignaðist Ágúst Pálmar í Varmahlíð 1939 og bjó þar 1940. Þau Óskar giftu sig á því ári, bjuggu á Heimagötu 30 við fæðingu Ólafar Auðbjargar 1941 og við fæðingu Eyrúnar Eddu 1942.
Þau byggðu húsið Sólhlíð 5 og voru komin þangað 1953, bjuggu þar síðan og þar fæddist Eygló 1953.
Óskar lést 1983 og Rut 1989.

I. Maður Rutar, (28. desember 1940), var Valtýr Óskar Ólafsson skipstjóri, f. 11. ágúst 1914, d. 24. febrúar 1983.
Börn þeirra:
1. Ágúst Pálmar Óskarsson, f. 12. desember 1939 í Varmahlíð.
2. Ólöf Auðbjörg Óskarsdóttir, f. 28. júlí 1941 á Heimagötu 30.
3. Eyrún Edda Óskarsdóttir, f. 2. október 1942 á Heimagötu 30.
4. Eygló Óskarsdóttir, f. 3. ágúst 1953 að Sólhlíð 5.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.