Ritverk Árna Árnasonar/Eyjólfur Jónsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kynning.

Eyjólfur Jónsson bóndi á Vesturhúsum fæddist 18. ágúst 1862 og lést 16. júlí 1906.
Foreldrar hans voru Jón Þorgeirsson bóndi á Oddstöðum, f. 1808 á Rauðhálsi í Mýrdal, d. 6. júní 1866 í Vanangri, og síðari kona hans, Margrét Halldórsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1832 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 15. febrúar 1919.
Eyjólfur var uppeldissonur Jóns Jónssonar bónda í Gvendarhúsi og konu hans Sesselju Jónsdóttur.
Eyjólfur var skráður 8 ára niðursetningur hjá þeim 1870.

Kona Eyjólfs, (15. október 1887), var Valgerður Eiríksdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 23. október 1856, d. 25. júní 1918.
Börn Valgerðar og Eyjólfs voru:
1. Katrín Eyjólfsdóttir, f. 7. mars 1887, d. 13. mars 1887.
2. Eiríkur, f. 18. apríl 1888.
3. Magnúsína, f. 16. september 1892, d. 9. febrúar 1968.
4. Jón Eyjólfsson, f. 25. apríl 1895, d. 1. maí 1895.
5. Eyjólfur, f. 29. júní 1896, d. 9. maí 1933.
6. Jón Vestmann, f. 26. mars 1898. Hann lést 11. maí 1911, hinn mesti mannsefnispiltur.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Eyjólfur Jónsson fór snemma í úteyjar og vandist fuglaveiðum og fjallaferðum. Ekki var hann samt álitinn neinn garpur til veiða, en duglegur. Við hann er kenndur veiðistaður í Álsey er „Eyvanef“ heitir. Fann Eyjólfur þennan stað, sem hefir verið ágætur fram til síðustu ára og mikið notaður. Þar veiddi undirritaður sína hæstu veiði um ævina 740 lunda. Nú er staðurinn í afturför vegna óþekktra ástæðna. Eyjólfur var dugandi maður og við veiðar alls konar, þó aldrei yrði hann snillingur með háfinn.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is
  • Manntöl.
  • Skipstjóra-og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan, Reykjavík 1979-1980.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.