Rannveig Jónsdóttir (Lundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rannveig Jónsdóttir húsfreyja í Stóru-Skógum í Stafholtstungum fæddist 9. febrúar 1892 og lést 16. apríl 1969.
Foreldrar hennar voru Guðrún Margrét Oddsdóttir húsfreyja, síðar í Fagurhól, f. 19. ágúst 1854 á Fjarðarhorni á Snæfellsnesi, d. í Fagurhól í júní 1910, og maður hennar Jón Bjarnason bóndi frá Hraunholti í Hnappadalssýslu, f. 19. apríl 1852, d. 19. ágúst 1901.

Rannveig var 9 ára með ekkjunni móður sinni á Fossi utan Ennis á Snæfellsnesi 1901.
Við manntal 1910 var hún vinnukona á Lundi hjá Gísla Engilbertssyni og Ragnhildi Þórarinsdóttur.

I. Barnsfaðir Rannveigar var Magnús Sigurðsson sjómaður, f. 26. apríl 1893, drukknaði af v.b. Freyju 30. mars 1927.
Barn þeirra:
1. Óskar Rafn Magnússon skrifstofumaður í Reykjavík, f. 5. janúar 1916 í Eyjum, d. 16. nóvember 1985. Kona hans Sigrún Halldóra Ágústsdóttir.

II. Rannveig giftist, (21. júlí 1917), Benjamíni Ingimarssyni bónda í Litla-Skarði í Norðurárdal, f. 7. ágúst 1876, d. 4. september 1945.
Þau bjuggu í Litla-Skarði í Borgarfirði til 1920, Stapaseli 1920-1921 og í Stóru-Skógum í Stafholtstungum 1921-1938. Þá fluttust þau til Reykjavíkur.
Börn Rannveigar og Benjamíns voru:
2. Marta Sigríður Benjamínsdóttir, f. 21. maí 1918, d. 16. september 1940.
3. Ragnar Benjamínsson bifreiðaviðgerðarmaður í Reykjavík, f. 29. maí 1925, d. 30. október 1981.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Garður.is.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.