Pálmi Ingimundarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pálmi Kristinn Ingimundarson var fæddur á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 11. febrúar 1904 og lést í Grundarfirði 11. apríl 1963. Hann ólst upp með foreldrum sínum, Ingimundi Árnasyni (sem talið er að hafi í raun verið sonur Kohls sýslumanns) og Pálínu Einarsdóttur.

Hann var 6 ára með foreldrum sínum í Nöjsomhed 1910 ásamt yngri bróður sínum, Enok og eldri hálfbróður, Einari Valdimar Jónassyni. 1911 fluttust Ingimundur og Pálína frá Nöjsomhed með börnin og bjuggu eftir það í Götu við Herjólfsgötu 12.

Sambýliskona og síðar eiginkona Pálma var Sveinfríður Ágústa Guðmundsdóttir. Fyrir átti hún þrjár dætur (Sigurveigu, Jónu og Pálínu) með Gunnari Ingimundarsyni, eldri hálfbróður Pálma.

Börn Pálma og Sveinfríðar voru 5, öll fædd í Vestmannaeyjum:
Börn þeirra:
1. Alda Særós Pálmadóttir húsfreyja í Reykjavík og í Dayton í Ohio-fylki í Bandaríkjunum, f. 25. september 1924, d. 7. janúar 1981. Hún bar þar nafnið Mrs Thomas Calvin Philips.
2. Ólafur Bertel Pálmason sjómaður og verkamaður, f. 21. maí 1929, d. 12. október 1997.
3. Eygló Bára Pálmadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 7. janúar 1931, d. 21. október 2012.
4. Þórunn Kristín Pálmadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. nóvember 1932, d. 22. október 1977.
5. Jóhanna Ragna Pálmadóttir húsfreyja, síðast í Eyrarsveit, f. 16. febrúar 1935, d. 23. desember 1990. Pálmi tók þátt í endurreisn Taflfélags Vestmannaeyja árið 1936.

Pálmi og Sveinfríður bjuggu á Herjólfsgötu 12A (Götu). Þau fluttust þaðan með alla fjölskylduna til Reykjavíkur um eða eftir 1940 og síðar til Grundarfjarðar þar sem Pálmi starfaði sem skósmiður til æviloka.

Heimildir: Prestsþjónustubækur, manntöl og Íslendingabók. Höfundur: Magnús Ó. Ingvarsson.