Páll Magnússon (prestur)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Páll Magnússon


Páll Magnússon var prestur að Ofanleiti í Vestmannaeyjum frá 1781 til 1789. Páll var fæddur í Sigluvík í Landeyjum árið 1743. Foreldrar hans voru Magnús Magnússon í Berjanesi í Landeyjum og kona hans Ingibjörg Pálsdóttir.

Hann varð stúdent frá Skálholtsskóla 1767 og vígðist síðar sem aðstoðarprestur séra Magnúsar Sveinssonar í Stóra Dal árið 1769. Hann bjó fyrst í Eyvindarkoti, síðar í Miðmörk. Páll fékk Hvalsnes árið 1773, Stóra Dal 1774 og síðast Ofanleiti árið 1781 og hélt því til æviloka. Hann varð bráðkvaddur að lokinni messu 24. maí 1789.

Páll var vel gefinn, kennimaður góður, hraustmenni og starfsamur, en þjáðist af niðurfallssýki. Kona hans var Guðrún Hálfdansdóttir. Þau áttu fjögur börn, þar á meðal var Ingibjörg er giftist séra Jóni Matthíassyni í Arnarbæli en sonur þeirra var Páll Mathiesen, síðar prestur þar og víðar.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.