Oddur Sigurðsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Oddur Sigurðsson)
Fara í flakk Fara í leit
Oddur lengst til vinstri og systkini.

Oddur Sigurðsson, Dal, fæddist að Skuld í Vestmannaeyjum 25. maí 1911. Foreldrar hans voru Sigurður Oddsson og Ingunn Jónasdóttir. Kona Odds var Lovísa Magnúsdóttir. Sigurður Pétur Oddsson er sonur þeirra.

Oddur byrjaði formennsku árið 1932 með Hansínu. Eftir það var hann meðal annars með Maí, Jötun og Frigg. Oddur lést 19 nóvember 1979.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Odd:

Oddur traustur græðis grér
gerir byggja Dalinn,
tíðar afla ferðir fer
fær með Jötunn valinn.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Oddur Sigurðsson


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Frekari umfjöllun

Oddur Sigurðsson.

Oddur Sigurðsson frá Skuld við Vestmannabraut 40, skipstjóri fæddist þar 25. maí 1911 og lést 19. nóvember 1979.
Foreldrar hans voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyja, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.

ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Oddur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann hóf ungur sjómennsku, öðlaðist skipstjórnarréttindi.
Oddur var skipstjóri á Hansínu 1932, en síðar á Maí, Jötni og Frigg.
Hann hætti sjómennsku 1968 og vann ýmis störf í landi, lengst hjá Skipaafgreiðslu Hafnarsjóðs, en síðan var hann verkstjóri hjá Friðriki Óskarssyni.
Oddur var einn af stofnendum Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi.

Þau Magnea Kristín giftu sig 1934, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Dal við Kirkjuveg 35.
Oddur lést 1979 og Magnea Lovísa 1991.

I. Kona Odds, (19. maí 1934), var Magnea Lovísa Magnúsdóttir frá Dal, húsfreyja, f. þar 12. ágúst 1914, d. 22. júní 1991.
Börn þeirra:
1. Magnús Oddsson vélstjóri, verslunarmaður, húsvörður, verkstjóri, f. 14. október 1934, d. 7. apríl 2014. Kona hans Þórunn Ólafsdóttir.
2. Sigurður Pétur Oddsson (Bói í Dal) skipstjóri, f. 18. maí 1936, d. 14. ágúst 1968. Kona hans Árnný Sigurbjörg Guðjónsdóttir.
3. Valur Oddsson sjómaður, vélstjóri, húsasmiður, f. 27. júlí 1942. Kona hans Kristín J. Stefánsdóttir, látin.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Myndir