Oddur Jónsson (Fagradal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Oddur Jónsson frá Tungu í Fljótshlíð, útvegsbóndi á Skjaldbreið, netagerðarmaður í Fagradal fæddist 4. mars 1877 og lést 26. mars 1927 Foreldrar hans voru Jón Ólafsson bóndi, f. 11. apríl 1842, d. 16. júní 1926, og kona hans Guðrún Oddsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1847, d. 6. ágúst 1899.

Börn Jóns og Guðrúnar í Eyjum voru:
1. Oddur Jónsson útvegsbóndi á Skjaldbreið, netagerðarmaður í Fagradal, f. 4. mars 1877, d. 26. mars 1927.
2. Arndís Jónsdóttir vinnukona, saumakona, f. 15. apríl 1882, d. 3. ágúst 1978.
3. Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Sandprýði, f. 3. júlí 1884, d. 10. desember 1951.
4. Auðbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Bólstað, f. 6. mars 1886, d. 9. október 1968.

Mágsemdarfólk Odds, systkini Ingiríðar, var:
1. Helgi Backmann Ingimundarson skipstjóri, f. 25. september 1870, d. 27. nóvember 1952.
2. Árni Ingimundarson skipstjóri, f. 6. janúar 1877, d. 1. apríl 1908.
3. Sigurður Ingimundarson útgerðarmaður, skipstjóri, f. 22. maí 1878, d. 5. apríl 1962.
4. María Ingimundardóttir, húsfreyja, f. 26. mars 1882, d. 3. apríl 1935.

Oddur var með foreldrum sínum 1880, var vikadrengur í Skeiðaháholti á Skeiðum í Árnessýslu 1890, vinnumaður í Viðey á Kollafirði 1901.
Hann fluttist frá Tungu í Fljótshlíð til Eyja 1907. Þau Ingiríður giftu sig 1908, bjuggu þá í Sandprýði, en á Skjaldbreið 1910.
Þau voru komin í Fagradal 1913 og bjuggu þar meðan Oddur lifði.
Hann lést 1927.
Ingiríður bjó þar með börnum sínu 1930, en fluttist úr bænum í byrjun 4. áratugarins, bjó síðast í Skipasundi 70 í Reykjavík. Hún lét 1959.

Kona hans, (21. desember 1908), var Ingiríður Ingimundardóttir frá Miðey í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 15. ágúst 1873, d. 17. apríl 1959.
Börn þeirra voru:
1. Árni Bergmann Oddsson skipstjóri, síðar bifreiðastjóri, verkstjóri í Reykjavík, f. 31. júlí 1909 á Skjaldbreið, d. 19. mars 1972.
2. Guðrún Anna Oddsdóttir, f. 31. desember 1910 á Skjaldbreið, húsfreyja í Reykjavík, d. 19. ágúst 2000.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. – IV. bls 94. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.