Mynd:Blik 1980 121.jpg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Upphafleg skrá(630 × 772 mynddílar, skráarstærð: 56 KB, MIME-gerð: image/jpeg)

Þessa konumynd teiknaði Jóhann Sigurðsson, listamaður frá Frydendal hér í Eyjum. Hann var hálfbróðir hinna kunnu Johnsensbræðra í kaupstaðnum. J.S. lézt vestur í Ameríku.
Svo einkennilega vill til, að myndin er af langömmu Páls Zophóníassonar, bæjarstjóra í Vestmannaeyjakaupstað. Konan á myndinni hét Jóhanna Sofía Jónsdóttir, og var dóttir Jóns dómsstjóra Péturssonar í Reykjavík. Hún fæddist 10. apríl 1855 og lézt 2. jan. 1931.
Hinn 28. ágúst 1877 giftist Jóhanna S. Jónsdóttir séra Zophóníasi Halldórssyni sóknarpresti að Goðdölum í Skagafirði. Árið 1886 varð hann prestur í Við vík í Skagafirði og seinna prófastur í Hegranesþingum. Hann lézt árið 1908. Þessi prestshjón í Skagafirði voru sem sé langafi og langamma Páls Zophóníssonar bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Sonur prestshjónanna var Páll Zóphóníasson kennari okkar „Hvanneyrarstrákanna“, síðar ráðunautur Búnaðarfélags Íslands og svo búnaðarmálastjóri og alþingismaður. Sonur hans Zophónís verkfræðingur og prófdómari við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Frú Jóhanna S. Jónsdóttir prestsfrú í Viðvík var föðursystir Jarþrúðar Pétursdóttur Johnsen, konu Sigfúsar M. Johnsen, fyrrv. Bæjarfógeta í Vestmannaeyjum. Það er ástæðan til þess, að þessi teikni mynd Jóhanns Sigurðssonar listmálara frá Frydendal fannst í dánarbúi bæjarfógetahjónanna og barst Bliki til eignar.

Mynd þessi birtist í Blik árið 1980 af blaðsíðu 121

Breytingaskrá skjals

Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.

Dagsetning/TímiSmámyndVíddirNotandiAthugasemd
núverandi26. júlí 2007 kl. 10:22Smámynd útgáfunnar frá 26. júlí 2007, kl. 10:22630 × 772 (56 KB)Dadi (spjall | framlög)Þessa konumynd teiknaði Jóhann Sigurðsson, listamaður frá Frydendal hér í Eyjum. Hann var hálfbróðir hinna kunnu Johnsensbræðra í kaupstaðnum. J.S. lézt vestur í Ameríku.<br> Svo einkennilega vill til, að myndin er af langömmu Páls Zo

Eftirfarandi síða notar þessa skrá: