Mynd:1961 b 197 B.jpg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

1961_b_197_B.jpg(320 × 229 mynddílar, skráarstærð: 32 KB, MIME-gerð: image/jpeg)

FJÖLSKYLDA JÓNS BÓNDA PÉTURSSONAR Í ÞÓRLAUGARGERÐI EYSTRA Í EYJUM.

Fremri röð frá vinstri:
1. Rósa Eyjólfsdóttir, kona Jóns Péturssonar, f. 3. júní 1876. Hún var systir Guðjóns bónda á Kirkjubæ Eyjólfssonar bónda Eiríkssonar.
2. Jón Pétursson, bóndi.
3. Svava Sigurðardóttir, fósturdóttir Rósu og Jóns og systurdóttir hans, f. 29. jan. 1918.
4. Ingibjörg Sigurðardóttir, stjúpa Jóns bónda, seinni kona Péturs bónda Benediktssonar, föður Jóns bónda.
5. Jón Guðjónsson bónda að Oddsstöðum, fóstursonur Rósu og Jóns.

Aftari röð frá vinstri:
1. Ármann, einkasonur Rósu og Jóns bónda, f. 15. des. 1900, d. 1. des. 1933.
2. Fanney Ármannsdóttir Jónssonar.
3. Sólrún Eiríksdóttir frá Kraga á Rangárvöllum, kona Ármanns og móðir Fanneyjar.
4. Guðfinna Sigurbjörnsdóttir Björnssonar, fósturdóttir Rósu og Jóns.
5. Laufey, dóttir Rósu og Jóns bónda.

Jón bóndi Pétursson var f. 21. júlí 1867 að Búðarhóli í Landeyjum.
Jón bóndi fékk byggingu fyrir Þórlaugargerði 11. febrúar 1905 eftir föður sinn Pétur Benediktsson.
Jón Pétursson bóndi var fjölhæfur verkmaður. Hann var ágætur smiður og smíðaði m.a. marga árabáta (sérstaklega skjögtbóta heima við bæinn í Þórlaugargerði). Einnig var Jón bóndi slyngur bjargveiðimaður. Hann var í fáum orðum sagt iðjumaður með afbrigðum og hygginn bóndi.

Þ.Þ.V.

Breytingaskrá skjals

Smelltu á dagsetningu eða tímasetningu til að sjá hvernig hún leit þá út.

Dagsetning/TímiSmámyndVíddirNotandiAthugasemd
núverandi18. ágúst 2010 kl. 19:26Smámynd útgáfunnar frá 18. ágúst 2010, kl. 19:26320 × 229 (32 KB)Viglundur (spjall | framlög)