Miðklettur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Miðklettur

Miðklettur er fjallið milli Heimakletts og Ystakletts í Norðurklettunum. Í Miðkletti að norðanverðum er Selhellir, en sunnan í fjallinu er lítil fjara. Hæsti tindur Miðkletts heitir Háhaus en það er einnig hæsti tindur Ystakletts kallaður.

Úr örnefnaskrá Gísla Lárussonar

II. Miðklettur (71) liggur milli Ystakletts og Heimakletts; eru takmörk að austan sem áður sagt Klettaskörð. Er austasti tindur Miðkletts nefndur Danskhaus (72). Þar niður af vestan megin Selhellraurðar er Gamlarétt (73), er sögn að þar hafi réttað verið fé og gefið niður í böndum á bát. Steinsenni (74) er brekka vestan við Danskhaus. Þar neðar Steinsennistó (75). Þar vestur af Kambshellir (efri) (76). Hér niður af gengur langur tangi í sjó út 25-30 faðma hár nefndur Kambur (77). Vestan í honum við sjó er Kambshellir (78) (af brimi í honum er oft markað hvort lendandi sé við Landeyjasand). Suður af Kambi er Hákarlabyrgi (79), skúti ca 30 faðma frá brún (á hákarl að hafa verið þurrkaður þar um sumur án þess að skemmast af sól eða maðki). Hér upp af Kambshöfuð, Nyrðra- (80) og Syðra- (81) en efst á þeim Bólhaus (82). Þar fyrir sunnan Valdató (83) – fór af í jarðskjálftanum 1896. Sunnan megin Miðkletts er austast Móbekkur (84). Þar vestar Bólbekkur (85) (dregið af bóli er legið var í við lundaveiði, sést enn hleðsla af veggjum). Þar vestur af Álkuhamar (86). Þá er talið að hér fyrir vestan sé Heimaklettur.


Heimildir