Magdalena Einarsdóttir (Kastala)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magdalena Einarsdóttir húsfreyja fæddist 1798 í Móum á Kjalarnesi og lést 20. október 1860 á Skúmsstöðum í V-Landeyjum.
Foreldrar hennar voru Einar Þorsteinsson sjómaður, f. 1770, d. 1. ágúst 1837, og kona hans Þórdís Pálsdóttir húsfreyja f. 1777, d. 11. október 1863.

Magdalena var með foreldrum sínum í Stakkagerði 1812.
Hún fór að Háamúla í Fljótshlíð og var þar „matselja“ 1816, kom aftur til Eyja 1818 og fluttist að Kastala, var þar vinnukona.
Þau Ingvar bjuggu í Gerði 1821 og fluttust frá Gerði að Ytri-Hól í Landeyjum 1823 og bjuggu þar til 1825, en í Efra-Seli í Landsveit 1825-1828. Þá fluttust þau að Grímsstöðum í V-Landeyjum og bjuggu þar til 1840, er þau fluttust að Klasbarðahjáleigu þar og bjuggu þar til dd. Magdalenu 1860.

Maður Magdalenu, (24. október 1819 í Eyjum), var Ingvar Jónsson, þá haustmaður í Kastala, f. 15. febrúar 1794, d. 18. júní 1866.

Börn þeirra hér:
1. Ólafur Ingvarsson, f. 26. febrúar 1819, d. 4. mars 1819 úr ginklofa.
2. Jón Invarsson, f. 27. maí 1821, d. 6. júní 1821 úr ginklofa.
Börn fædd utan Eyja:
3. María Ingvarsdóttir vinnukona, f. 29. apríl 1824, d. 6. febrúar 1869.
4. Þórunn Ingvarsdóttir húsfreyja í Brennu u. Eyjafjöllum, f. 24. apríl 1825, d. 9. ágúst 1896, gift Gísla Ólafssyni.
5. Magdalena Ingvarsdóttir, f. 1. janúar 1829, d. 8. janúar 1829.
6. Magdalena Ingvarsdóttir, f. 6. febrúar 1831, d. 25. janúar 1838.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.