Lilja Ingvarsdóttir (Melstað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorgríma Lilja Ingvarsdóttir frá Neðridal u. V-Eyjafjöllum, sjúkrahússstarfsmaður, saumakona fæddist 28. júlí 1907 og lést 10. janúar 1996.
Foreldrar hans voru Ingvar Ingvarsson frá Neðri-Dal undir V-Eyjafjöllum, bóndi, f. 21. apríl 1874, d. 12. janúar 1955, og kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir frá Hellishólum í Fljótshlíð, húsfreyja, f. 8. mars 1875, d. 8. febrúar 1950.
Fósturforeldrar hennar voru Vigfús Bergsteinsson bóndi á Brúnum u. Eyjafjöllum, f. 18. febrúar 1863, d. 25. desember 1930, og kona hans Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1859, d. 12. febrúar 1935.

Móðir Ingvars í Neðri-Dal var Ingibjörg Samúelsdóttir húsfreyja, sem var fyrri kona Jóns Vigfúsar Vigfússonar, síðar í Túni. Þau skildu. Dætur þeirra voru:
1. Ingibjörg Jónsdóttir vinnukona, f. 12. febrúar 1859 í Krókatúni, d. 24. júlí 1940.
2. Pálína Jónsdóttir, f. 23. mars 1860 í Krókatúni, d. 16. júlí 1882 úr mislingum.
3. Sigríður Jónsdóttir, f. 1861 í Krókatúni, d. 15. júlí 1882 úr mislingum.

Börn Ingvars og Guðbjargar í Eyjum voru:
1. Þorgríma Lilja Ingvarsdóttir sjúkrahússstarfsmaður, saumakona, f. 28. júlí 1907, d. 10. janúar 1996. Hún var um stutt skeið í Eyjum, en fluttist til Lovísu systur sinnar og bjó þar.
2. Samúel Ingvarsson sjómaður, verkamaður, bóndi fæddist 7. september 1908 og lét 15. desember 1993.
3. Tryggvi Ingvarsson á Stóru-Heiði, f. 27. janúar 1910, d. 3. maí 1945, fórst við störf í Hraðfrystistöðinni.
4. Jóhanna Svava Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1911, d. 16. maí 1992.
5. Leó Ingvarsson sjómaður, járnsmiður, f. 22. september 1913, d. 29. nóvember 2005.
6. Ingibjörg Fjóla Ingvarsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 11. janúar 1918, d. 7. apríl 2010.

Lilja var fósturbarn á Brúnum u. Eyjafjöllum 1910 og 1920. Hún var vinnukona á Brúnum 1930.
Lilja fluttist til Eyja, leigði á Melstað og Hólagötu 2.
Hún vann lengi á Sjúkrahúsinu við matargerð. Við Gosið fluttist hún á Selfoss og bjó hjá Lovísu systur sinni. Á Selfossi vann hún við sauma, en á haustin við sláturgerð í Djúpadal.
Hún dvaldi að síðustu á dvalarheimilinu Hvoli á Hvolsvelli.
Hún var ógift og barnlaus.
Lilja lést 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.