Leifur Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Leifur Sigfússon tannlæknir, franskur vicekonsúll.

Leifur Sigfússon tannlæknir, fæddur að Vestri-Löndum 4. nóv. 1892.
Foreldrar hans voru hjónin Sigfús Árnason organisti og söngstjóri og kona hans Jónína K.N. Brynjólfsdóttir húsfreyja. Þau hjón bjuggu á Vestri-Löndum.
Leifur varð „stúdent 1913 með 1. einkunn. Cand. phil. 12. júní 1914. Las fyrst læknisfræði í Kaupmannahöfn, þar sem Gísli Brynjólfsson, móðurbróðir hans, var starfandi læknir um árabil.
Brátt hvarf Leifur frá því námi og hvarf að tannlæknanámi. Þar lauk hann prófi 1920. Vann hann síðan við tannlækningar í Þrándheimi í Noregi um þriggja ára skeið, síðan suður í Sviss og í Svíþjóð. Samtals mun hann hafa dvalizt erlendis um 13 ára skeið.
Árið 1926 setti Leifur á stofn tannlæknastofu hér í heimabyggð sinni og starfaði hér síðan að tannlækningum til æviloka. — Leifur kvæntist 3. ágúst 1939 Ingrid Jensine (f. Steengaard) frá Veile á Jótlandi. Þeim varð eins barns auðið, Ninna Dóróthea Leifsdóttir, búsett kona í Reykjavík.
Leifur er sagður hafa verið trygglyndur maður og vinafastur, samvizkusamur og vandvirkur svo að frábært var, viðkvæmur, orðheldinn og ráðvandur. Hann mátti hvergi vamm sitt vita fremur en margir forfeður hans og frændur.
Leifur Sigfússon varð bráðkvaddur 25. febrúar 1947.“


Heimildir