Lárus Halldór Jakobsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Lárus Halldór Jakobsson fæddist í Vestmannaeyjum 21. júlí 1958. Hann lést á Landspítalanum 11. október 1994. Foreldrar hans voru Jakob Sigurjónsson vörubifreiðastjóri og Inga Hrefna Lárusdóttir, starfsstúlka á Hraunbúðum. Lárus var ókvæntur og barnlaus.

Árið 1975 hóf Lárus nám í húsasmíði hjá Valgeiri Jónassyni húsasmíðameistara. Lauk hann sveinsprófi árið 1978.

Lárus starfaði við Fiskimjölsverksmiðju Einars Sigurðssonar. Árið 1986 varð hann framkvæmdastjóri og gjaldkeri knattspyrnuráðs ÍBV og starfaði þar nær óslitið til dauðadags. Var hann dáður innan knattspyrnuhreyfingarinnar í Vestmannaeyjum fyrir ómetanlegt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Hann hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín að íþróttamálum, m.a. silfurmerki KSÍ, gullmerki knattspyrnufélagsins Týs og Fréttapíramítann sem vikublaðið Fréttir veitir árlega þeim sem hafa unnið ómetanlegt gagn fyrir íþróttahreyfinguna í Vestmannaeyjum. Í júlí 1994 keypti Lárus söluturninn Turninn, og hugðist reka hann.


Heimildir

  • Morgunblaðið. 22. október 1994. Minningargreinar um Lárus Halldór Jakobsson.