Lárus Árnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Lárus Árnason frá Vilborgarstöðum var barnakennari í Vestmannaeyjum skólaárið 1884-1885. Lárus fæddist að Vilborgarstöðum 24. janúar 1862. Hann var sonur Árna Einarssonar hreppstjóra og Guðfinnu Jónsdóttur prests Austmanns.

Hann var albróðir hinna fyrri barnakennara í Eyjum. Þegar Lárus gerðist barnakennari hafði hann lokið stúdentsprófi. Sumarið eða haustið 1885 sigldi Lárus til Kaupmannahafnar og tók að lesa lyfjafræði við Háskólann. Að því námi loknu fór hann til Ameríku og settist þar að. Hann var lengi lyfsali í Grand Forks í Kaliforníu.