Kristján Magnússon (Tungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristján Magnússon bóndi í Tungu í Skutulsfirði fæddist 29. október 1844 í Þjóðólfstungu í Bolungarvík og lést 15. febrúar 1914 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Magnús Árnason frá Tungu í Bolungarvík, bóndi þar, f. 27. maí 1797, d. 5. nóvember 1884, og kona hans Sigríður Halldórsdóttir frá Kirkjubóli í Skutulsfirði, alin upp í Vigur, húsfreyja, f. 30. apríl 1802, d. 24. ágúst 1864.

Kristján var með foreldrum sínum í æsku, var léttadrengur í Tungu í Bolungarvík 1860.
Þau Halldóra giftu sig 1868, eignuðust sjö börn. Þau voru húsfólk í Þjóðólfstungu í Bolungarvík 1870 bændur í Tungu í Skutulsfirði 1880 og 1890. Halldóra kona hans lést 1898 og hann var ekkill á Ísafirði 1901. Hann bjó hjá Sigríði Kristjánsdóttur dóttur sinni í húsi hennar í Bolungarvík 1910 og þar bjuggu einnig Halldóra dóttir hans og Jóhann Sörensen bakari með Halldóru kjörbarni sínu.
Kristján flutti til Eyja með Halldóru og Jóhanni bakara 1912, var hjá þeim í Tungu 1912.
Hann lést 1914.

I. Kona Kristjáns, (25. september 1868), var Halldóra Kristín Halldórsdóttir húsfreyja, f. 14. september 1844, d. 23. september 1898.
Börn þeirra:
1. Sigríður Kristjánsdóttir verslunarkona, síðar fósturmóðir Emmu Guðjónsdóttur Reyndal, f. 30. október 1870, d. 11. apríl 1955.
2. Halldór Kristján Kristjánsson, f. 22. mars 1872, d. 10. nóvember 1872.
3. Halldór Kristjánsson, f. 22. mars 1875, d. 7. apríl 1875.
4. Margrét Kristjánsdóttir, f. 1876, d. 4. júní 1878.
5. Kristjana Kristjánsdóttir, f. 10. september 1879, d. 15. nóvember 1879.
6. Margrét Kristjana Kristjánsdóttir, f. 18. apríl 1882, d. 3. ágúst 1882.
7. Halldóra Guðmunda Kristjánsdóttir Reyndal, áður Sörensen, húsfreyja í Tungu, f. 26. ágúst 1877, d. í mars 1922 í Hjörring. Maður hennar var Jóhann Pétur Reyndal, áður Sörensen.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.