Kristinn Jónsson (Hvíld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Jónsson verslunarmaður á Tanganum fæddist 29. nóvember 1898 í Neðri-Dal í Mýrdal og lést 8. júní 1946 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Jón Þorsteinsson bóndi í Neðri-Dal og á Steig í Mýrdal, f. 13. nóvember 1867, d. 28. júlí 1921, og kona hans Sigríður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 30. janúar 1872, d. 16. maí 1952 í Eyjum.

Börn Sigríðar og Jóns í Eyjum:
1. Þorsteinn Jónsson lausamaður á Setbergi 1934 og 1940, sjúklingur, f. 12. ágúst 1894 á Mið-Hvoli í Mýrdal, d. 4. maí 1980.
2. Bjarni Jónsson sjómaður, verkamaður í Reynisholti, f. 30. júní 1896 í Neðri-Dal í Mýrdal, d. 21. febrúar 1964.
3. Kristinn Jónsson í (Hvíld), Reynisholti, verslunarmaður á Tanganum, f. 29. nóvember 1898 í Neðri-Dal í Mýrdal, d. 8. júní 1946.
4. Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Sóleyjartungu, Brekastíg 21, f. 18. febrúar 1908 í Steig í Mýrdal, d. 9. mars 1997.
5. Jón Jónsson véstjóri, verkamaður, f. 20. júlí 1909 í Steig, d. 30. september 1962.
6. Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Hilmisgötu 5, f. 16. september 1912, d. 24. janúar 2003.

Kristinn var með foreldrum sínum í Neðri-Dal til ársins 1899, hjá þeim í Steig 1899-1920.
Hann fluttist til Eyja 1920 og varð vinnumaður á Kirkjubæ, síðan bifreiðarstjóri og verslunarmaður hjá Gunnari Ólafssyni og Co. á Tanganum.
Þau Ágústa giftust 1921, bjuggu í fyrstu hjá foreldrum hennar í Hvíld við Faxastíg. Árið 1924 reistu þau byggingu við Hvíld, nefndu Reynisholt og bjuggu þar síðan. Synir þeirra þrír fæddust 1922, 1923 og 1925 og ólust þar upp, kenndir við Hvíld.
Kristinn lést 1989.

Kona Kristins, (5. október 1921), var Ágústa Arnbjörnsdóttir húsfreyja frá Hvíld, Ögmundssonar, f. 11. ágúst 1899, d. 24. maí 1989.
Börn þeirra hér:
1. Sigurjón Kristinsson BA, skátaforingi, kennari, framkvæmdastjóri, f. 18. júlí 1922, d. 8. desember 2007. Kona hans var Jónína Ingólfsdóttir.
2. Sigurður Magnús Kristinsson forstjóri, f. 13. október 1923, d. 11. febrúar 2019. Fyrri kona hans var Ragnheiður Guðmundsdóttir, d. 1977. Síðari kona hans er Gréta Bachmann.
3. Arnbjörn Kristinsson bókaútgefandi, f. 1. júní 1925, d. 13. desember 2017. Kona hans er Ragnhildur Björnsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Morgunblaðið. Minning 1989. Jónína Ingólfsdóttir.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.