Kristín Jónasdóttir (Sólvangi))

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristín Jónasdóttir.

Kristín Jónasdóttir frá Leirá í Borgarfirði, húsfreyja fæddist þar 20. desember 1843 og lést 2. febrúar 1917.
Foreldrar hennar voru Jónas Benediktsson bóndi í Belgsholti, söðlasmiður, f. 14. ágúst 1816 á Stóru-Giljá í A-Hún., d. 16. desember 1854, og Helga Sveinsdóttir, þá vinnukona á Leirá, f. 1807, d. 27. mars 1854.

Kristín var með móður sinni, tökubarn á Leirá með henni 1845, fósturbarn með henni þar 1850, vinnukona í Deildartungu í Reykholtsdal 1860, húsfreyja á Indriðastöðum í Skorradal 1869-1871, á Narfastöðum í Melasveit 1871-1873, á Geldingaá þar 1873-1882, í Áskoti þar 1882-1900.
Þau Jón giftu sig 1869, eignuðust sjö börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta ári þess.
Jón lést 1889 og Kristín bjó ekkja í Áskoti til 1900.
Hún leitaði til Magnúsar sonar síns á Seyðisfirði og var hjá Hildi og honum 1905 og síðan meðan þau bjuggu þar og fylgdi þeim til Eyja 1915. Hún var þar með þeim á Túnsbergi, er hún lést í febrúar 1917.

I. Maður Kristínar, (3. júní 1869), var Jón Jónsson bóndi, vefari, f. 17. nóvember 1840 í Deildartungu, d. 23. október 1889. Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi í Deildartungu, f. 1. desember 1786, d. 20. desember 1858, og síðari kona hans Guðrún Böðvarsdóttir húsfreyja, f. 25. maí 1810, d. 13. apríl 1886.
Börn þeirra:
1. Jón Jónsson Reykdal, málari í Reykjavík, f. 28. september 1865, d. 6. júlí 1921. Kona hans Fanney Valdimarsdóttir.
2. Guðrún Jónsdóttir forstöðukona, rjómabústýra, húsfreyja á Ormsstöðum á Fellsströnd, Dal., f. 7. mars 1871, d. 23. mars 1956. Maður hennar Gestur Magnússon.
3. Jóhannes Jónsson smiður í Reykjavík, f. 21. maí 1872, d. 17. desember 1944. Fyrsta kona hans Helga Vigfúsdóttir. Önnur kona Solveig Sæmundsdóttir. Þriðja kona hans Kristín Jónsdóttir.
4. Magnús Jónsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, ritstjóri, ljóðskáld, organisti, f. 1. september 1875, d. 6. febrúar 1946. Kona hans Hildur Ólafsdóttir.
5. Þorbjörn Jónsson smiður í Vesturheimi, f. 3. mars 1877, d. 27. september 1947. Hann var einn af stofnendum Timburverslunarinnar Völundar.
6. Helga Jónsdóttir, f. 18. apríl 1879, d. 20. febrúar 1880.
7. Helgi Bjarni Jónsson bóndi á Jarðlangsstöðum í Borgarhreppi, Mýr. og á Glæsivöllum í Miðdölum, Dal., smiður, síðar verkamaður á Sólvangi í Eyjum, f. 4. mars 1881, d. 13. janúar 1943. Kona hans Jósefína Sigurðardóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.