Kristín Georgsdóttir (Vegbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Georgsdóttir frá Vegbergi, húsfreyja, verkakona, umboðsmaður fæddist 14. nóvember 1939 á Reykjum.
Foreldrar hennar voru Georg Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, verkamaður, smiður, húsvörður, f. þar 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988, og kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir frá Háarima í Þykkvabæ, Rang., húsfreyja, ræstitæknir, f. þar 31. júlí 1921, d. 3. september 2017.

Börn Sigurbáru og Georgs:
1. Kristín Georgsdóttir húsfreyja, umboðsmaður, f. 14. nóvember 1939. Maður hennar Ólafur Oddur Sveinbjörnsson, látinn.
2. Sigurður Georgsson skipstjóri, f. 1. mars 1941. Kona hans Guðný Fríða Einarsdóttir.
3. Þráinn Einarsson skrifstofustjóri, f. 20. nóvember 1942. Kona hans Svava Sigríður Jónsdóttir. Hann varð kjörsonur Einars Skæringssonar og Guðríðar Konráðsdóttur.
4. Skæringur Georgsson húsasmiður, skrifstofumaður, f. 2. maí 1944. Kona hans Sigrún Óskarsdóttir.
5. Vignir Georgsson stúdent, f. 6. maí 1946, d. 25. apríl 1968.
6. Guðfinna Georgsdóttir húsfreyja, f. 1. apríl 1950. Fyrrum maður hennar Óskar Kristinsson.
7. Sigmar Georgsson verslunarstjóri, f. 1. apríl 1950. Kona hans Edda Angantýsdóttir.
8. Ingimar Heiðar Georgsson bifreiðastjóri, kaupmaður, f. 12. maí 1960. Kona hans Hjördís Inga Arnarsdóttir.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, á Reykjum við Vestmannabraut 54, þá í Langa-Hvammi við Kirkjuveg 41, síðan í Steinholti við Kirkjuveg 9a og á Vegbergi.
Hún lauk miðskólaprófi í Gagnfræðaskólanum 1955, tók stúdentspróf í Þýsku við Framhaldsskólann í Eyjum.
Kristín vann við Barnaheimilið Helgafell, var verslunarmaður í Kaupfélagi Vestmannaeyja, var ræstitæknir við Barnaskólann. Hún vann hjá Brunabótafélgi Íslands í Eyjum eftir Gos, var umboðsmaður þess 1978-1989, svæðisstjóri eftir sameiningu þess og Vátryggingafélags Íslands.
Þau Ólafur Oddur giftu sig 1958, eignuðust 4 börn. Þau bjuggu á Skólavegi 32 1960, síðar á Illugagötu 73.

Maður Kristínar, (15. nóvember 1958), var Ólafur Oddur Sveinbjörnsson vélstjóri, múrarameistari, f. 5. júlí 1938 á Snæfelli við Hvítingaveg 8, d. 9. nóvember 2003.
Börn þeirra:
1. Georg Óskar Ólafsson málarameistari, f. 12. janúar 1957. Kona hans Hera Dís Karlsdóttir.
2. Oddný Bára Ólafsdóttir verslunarkona, f. 23. október 1960. Maður hennar Gunnar Kristjánsson.
3. Vignir Ólafsson tónlistarkennari, málari, f. 14. júní 1964. Fyrrum kona hans Elísabet Arietta. Kona hans Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir.
4. Þórir Ólafsson sölu- og þjónusturfulltrúi í Svíþjóð, f. 21. júní 1966. Fyrrum kona hans Guðmunda Jóna Hlífarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.