Kristín Anna Karlsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Anna Karlsdóttir frá Reykjavík, húsfreyja, verkakona fæddist 4. júlí 1937.
Kjörforeldrar hennar voru Karl Moritz Guðmundsson brunavörður í Reykjavík, f. 26. maí 1881, d. 4. mars 1945 og Hermanía Sigríður Anna Markúsdóttir húsfreyja, saumakona, f. 5. nóvember 1901, d. 19. maí 1995.
Kynforeldrar Kristínar Önnu voru Vigfús Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 9. ágúst 1866, d. 1. mars 1946, og Guðný Efemía Þórðardóttir verkakona, húsfreyja, f. 6. október 1898, d. 9. febrúar 1961.

Kristín Anna ólst upp í Reykjavík. Þau Sigurður giftu sig þar 1959. Hún fluttist til Eyja í byrjun árs 1960. Þau eignuðust þrjú börn, bjuggu í Gvendarhúsi, á Heiðarvegi 42 og á Eiðum, reistu hús við Grænuhlíð 20 1960-1964 og bjuggu þar til Goss.
Þau fluttust til Þorlákshafnar og bjuggu þar síðan.
Sigurður lést 2002. Kristín Anna býr í Þorlákshöfn.

I. Maður Kristínar Önnu, (18. desember 1959), var Sigurður Guðmundsson frá Eiðum, verkamaður, netagerðarmaður, f. þar 14. janúar 1925, d. 12. september 2002.
Börn þeirra:
1. Sigríður Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 30. ágúst 1960. Maður hennar er Sigurður Baldursson.
2. Árný Sigurðardóttir verkakona í Þorlákshöfn, f. 19. ágúst 1965. Barnsfeður hennar eru Grétar Ísfeld Sævarsson og Sigurvin Snorrason.
3. Anna Kristín Sigurðardóttir verkakona í Eyjum, f. 19. ágúst 1965. Barnsfaðir að þrem börnum er Gerhard Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.