Kristín Jónsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Jónsdóttir vinnukona fæddist 1830 í Álftaveri í V-Skaft. og lést 1. desember 1902.
Móðir hennar var Guðríður húsfreyja í Holti í Álftaveri, f. 1801, Einarsdóttir bónda í Skálmarbæ þar, f. 1773, drukknaði á Stokkseyri 30. apríl 1815, Einarssonar, og konu Einars Einarssonar, Ingveldar húsfreyju, f. 1769, Jónsdóttur.
Faðir Kristínar var líklega Jón Sigurðsson, f. um 1799, d. 1883.

Kristín var í Holti 1835 hjá ekkjunni móður sinni, sem var búandi þar.
Hún kom í fóstur til Sesselju Sigurðardóttur og Jóns Gíslasonar í Stakkagerði 1838 og var skráð fósturbarn þar enn 1845, vinnukona frá 1846 og enn 1851, vinnukona í Juliushaab 1854, á Vesturhúsum 1855, Oddsstöðum 1856 og enn 1860, á Löndum 1861 og 1862, í Fagurlyst 1863, á Gjábakka 1865, á Fögruvöllum 1869 og 1870, í Vanangri 1876, í London 1880.
Kristín var niðursetningur í Kuðungi 1890, í Péturshúsi 1901.
Hún lést í Péturshúsi 1902, ógift

I. Barnsfaðir hennar var Ögmundur Ögmundsson, þá vinnumaður á Oddsstöðum, f. 29. október 1836, d. 27. nóvember 1909.
Barn þeirra var
1. Gísli Ögmundsson, f. 31. ágúst 1860, d. 22. nóvember 1860 úr ginklofa.

II. Barnsfaðir hennar var Ólafur Ólafsson vinnumaður í Draumbæ, f. 3. nóvember 1794, d. 18. júlí 1849.
Barn þeirra:
2. Sigmundur Ólafsson, f. 27. febrúar 1864 á Oddstöðum, d. 30. júlí 1890 í Spanish Fork í Utah.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.