Kristín Brynjólfsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Brynjólfsdóttir frá Ofanleiti, húsfreyja, prestkona á Stað í Grunnavík fæddist 20. apríl 1865 að Ofanleiti og lést 19. nóvember 1918.
Faðir Kristínar var Brynjólfur Jónsson prestur í Eyjum, búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 á Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr. Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Kristínar og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona, (31. október 1818), Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Börn Ragnheiðar og Brynjólfs:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed, d. 13. janúar 1889.
2. Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 14. ágúst 1856 í Nöjsomhed, d. 16. nóvember 1906.
3. Jóhanna Kristjana Brynjólfsdóttir, f. 23. desember 1858 í Nöjsomhed, d. 13. mars 1860 úr „hósta, kvefsótt“.
4. Gísli Brynjólfsson læknir í Danmörku, f. 3. mars 1861 í Nöjsomhed, d. 18. september 1930.
5. Jóhanna Brynjólfsdóttir vinnukona á Löndum, f. 1. júlí 1863 að Ofanleiti, d. 24. júlí 1900.
6. Kristín Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Stað í Grunnavík, f. 20. apríl 1865 að Ofanleiti, d. 19. nóvember 1918.
7. Sigríður Brynjólfsdóttir, fór til Vesturheims, f. 10. september 1868, d. 6. nóvember 1932. Maður hennar var Páll Símonarson
8. Ingibjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Prestbakka á Síðu, f. 26. febrúar 1871 að Ofanleiti, d. 12. maí 1920.

Kristín var með foreldrum sínum meðan beggja naut við, en faðir hennar lést 1884.
Hún fluttist að Eliðavatni 1887, var í dvöl um óákveðinn tíma á Grjótagötu 10 í Reykjavík 1890.
Þau Kjartan giftu sig 1892, eignuðust tvö börn. Þau fluttust til Grunnavíkur 1893 og bjuggu þar til 1916, er Kjartan var settur prestur að Sandfelli í Öræfum.
Kristín lést 1918.

I. Maður Kristínar, (28. september 1892), var Kjartan Kjartansson frá Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum, prestur, f. 27. mars 1868, d. 1. nóvember 1945. Foreldrar hans voru Kjartan Jónsson frá Drangshlíð u. Eyjafjöllum, prestur að Eyvindarhólum þar, f. 8. ágúst 1804, d. 28. febrúar 1895, og síðari kona hans Ragnhildur Gísladóttir frá Gröf í Skaftártungu, V-Skaft., húsfreyja, prestkona, f. 11. mars 1842, d. 25. október 1931.
Börn þeirra:
1. Brynjólfur Kjartansson stúdent, loftskeytamaður, stýrimaður, og skipstjóri á Hermóði og Skeljungi. Síðar umsjónarmaður Háskóla Íslands, f. 20. desember 1893, d. 20. september 1961. Fyrri kona Ingveldur Brandsdóttir. Síðari kona Elísabet Jónsdóttir.
2. Ragnhildur Kjartansdóttir, f. 10. apríl 1895, d. 25. október 1896.
3. Gísli Kjartansson skrifstofumaður, f. 21. september 1896, d. 17. febrúar 1930.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.