„Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2006/Minning látinna“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
'''MINNING LÁTINNA'''

'''MINNING LÁTINNA'''

'''Ívar Magnússon'''

'''Ívar Magnússon'''

Lína 11: Lína 11:
'''[[Jón Árni Jónsson]]'''

'''[[Jón Árni Jónsson]]'''

'''F. 29. febrúar 1948 - D. 3. janúar 2006'''
[[Mynd:Jón Árni Jónsson sj.blað.png|200px|thumb|Jón Árni Jónsson]]

[[Jón Árni Jónsson]] var fæddur á Eyrarbakka 29. febrúar 1948. Foreldrar hans voru Jón Valgeir Ólafsson, fæddur á Bakka í Ölfusi 22. janúar 1915, dáinn 3. desember 2003, sjómaður og síðar verkstjóri og Guðrún Bjarnfinnsdóttir, fædd í Björgvin á Eyrarbakka 1. mai 1923, dáin 29. janúar 1989, húsmóðir og verkakona. Jón Árni var fjórði í röðinni af níu systkinum. Ungur, 14 ára, byrjaði hann til sjós á Eyrarbakka, var síðan á ýmsum bátum og skipum, m. a. Arnfirðingi í Grindavík, 1965 til 1969 og eitt sumar á flutningaskipinu Síldinni.
Til Vestmannaeyja kom hann í ársbyrjun 1970 og átti hér heima til hinstu stundar. Hér byrjaði hann á Björgu VE 5 hjá undirrituðum og síðan fórum við saman á Árna í Görðum VE 73 nýjan 1971 og vorum þar þangað til hann var seldur 1983. Hann var stundum háseti og líka kokkur, frábær að hvoru sem hann gekk. Eftir árin á Árna í Görðum var Jón Árni á eftirtöldum Eyjabátum: Sjöfn, Ófeigi, Styrmi, Skúla fógeta, Frigg, Sigurfara og Kristbjörgu fram yfir 1990. Eftir öll árin á sjónum fór Jón Árni að vinna í [[Vinnslustöð Vestmannaeyja]] þar til að hann varð þar fyrir vinnuslysi sem gerði hann nánast óvinnufæran. Reyndi þó að beita smávegis þegar trillurnar réru á haustin.

[[Jón Árni Jónsson]] var fæddur á Eyrarbakka 29. febrúar 1948. Foreldrar hans voru Jón Valgeir Ólafsson, fæddur á Bakka í Ölfusi 22. janúar 1915, dáinn 3. desember 2003, sjómaður og síðar verkstjóri og Guðrún Bjarnfinnsdóttir, fædd í Björgvin á Eyrarbakka 1. mai 1923, dáin 29. janúar 1989, húsmóðir og verkakona. Jón Árni var fjórði í röðinni af níu systkinum. Ungur, 14 ára, byrjaði hann til sjós á Eyrarbakka, var síðan á ýmsum bátum og skipum, m. a. Arnfirðingi í Grindavík, 1965 til 1969 og eitt sumar á flutningaskipinu Síldinni.
Til Vestmannaeyja kom hann í ársbyrjun 1970 og átti hér heima til hinstu stundar. Hér byrjaði hann á Björgu VE 5 hjá undirrituðum og síðan fórum við saman á Árna í Görðum VE 73 nýjan 1971 og vorum þar þangað til hann var seldur 1983. Hann var stundum háseti og líka kokkur, frábær að hvoru sem hann gekk. Eftir árin á Árna í Görðum var Jón Árni á eftirtöldum Eyjabátum: Sjöfn, Ófeigi, Styrmi, Skúla fógeta, Frigg, Sigurfara og Kristbjörgu fram yfir 1990. Eftir öll árin á sjónum fór Jón Árni að vinna í [[Vinnslustöðin|Vinnslustöð Vestmannaeyja]] þar til að hann varð þar fyrir vinnuslysi sem gerði hann nánast óvinnufæran. Reyndi þó að beita smávegis þegar trillurnar réru á haustin.

Jón Árni, frændi minn, var mjög góður skipsfélagi. Alltaf tilbúinn þegar kallað var, indæll, traustur, rólegur og yfirvegaður á hverju sem gekk. Árið 1998 keypti hann húsið að Brekastíg 36 og bjó þar til dauðadags. Síðustu árin voru honum erfið vegna heilsuleysis og hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja eftir stutta legu þar 3. janúar s.l.

Bestu kveðjur ágæti frændi og vinur.

Bestu kveðjur ágæti frændi og vinur.

Lína 31: Lína 31:
[[Bjarni Gísli Bjarnason]] var fæddur á Siglufirði 22. desember 1922. Foreldrar hans voru Bjarni Gíslason sem fórst áður en Bjarni fæddist, 12. mai 1922 þegar vélbáturinn Samson fórst í hákarlalegu og Margrét Guðfinna Bjarnadóttir sem dó 30. janúar 1968. Þrjá bræður átti Bjarni, þá Sören Karl sem lifir og býr á Sauðárkróki en hinir voru Bjarni Daníel Friðbjörn og hálfbróðirinn Jón.

Bjarni bjó með Sigríði K. Bjarnadóttur sem dó 11. febrúar 1978. Saman ólu þau upp Halldór Ragnarsson sem var fæddur á Siglufirði 2. október 1938. Þeir Bjarni og Halldór héldu saman heimili eftir lát Sigríðar.

Bjarni var ótrúlegur harðjaxl, sjómaður og verkamaður sem alla tíð vann eins og líkaminn þoldi. Hann þekkti ekki annað en að taka á í lífinu. Bjarni tengdist okkur feðgunum frá Löndum vináttu - og tryggðarböndum sem byggðust á þeirri virðingu sem við berum fyrir dugnaðarforkum og listamönnum til allra verka eins og Bjarni var. Pabbi og Bjarni kynntust fyrst þegar þeir voru saman hásetar á togaranum Elliða frá Siglufirði þar sem afi minn, Ásmundur Friðriksson, var skipstjóri. Bjarni var skörinni hærra settur en pabbi, hann var hausari. Saltað var um borð og vinnan var svakaleg. Þessi smávaxni maður þótti mikill hausari sem beitti hausingarsveðjunni af list. Tvö nett hnífsbrögð inn með kinninni og hann reif hausinn af svo hnakkastykkið fylgdi með. Það hafði enginn við karlinum hvort heldur það var eftir fyrsta halið í túrnum eða það síðasta í skítabrælu á 35. degi og skipið orðið fullt upp í lúgur af flöttum saltfiski.
Hann var líka á Ingvari Guðjónssyni, Hafliða o. fl. skipum frá Siglufirði. Bjarni var listamaður til allra verka og umgengni. Það er líka list að vera góður sjómaður og afburða flatningsmaður. Hann var ekki listamaður eins og þeir sem sækja kaffihúsin og bulla út í eitt um einskis verða hluti og sötra bjór. Bjarni gerði minna af því að tala, hann gat verið glettinn og hláturmildur en lét sér oftast nægja að láta verkin tala og þegar hann fékk sér í glas þá var það ekki samkvæmt einhverjum Dagsbrúnartöxtum frekar en vinnan.
Þau Sigga og Bjarni fluttust til Vestmannaeyja í ársbyrjun 1964. Hann réði sig í skiprúm hjá pabba á Öðlingi Ve 202 og á þeim árum voru oft sagðar hetjusögur af honum í eldhúsinu á Grænuhlíð 18. Hann réri seinna á Elliðaey hjá [[Gísli Sigmarsson|Gísla Sigmars]], Baldri hjá [[Hannes Haraldsson|Hanna]] í [[Fagurlyst]] o.fl. Bjarni var fíngerður maður, hafði ekki þetta jaxlaútlit sem hann sannarlega var. Stakk aðeins við þegar hann gekk, hokinn og leit niður fyrir sig, gjóaði þó augunum annað slagið á samferðamenn sem honum komu ekkert við. Síðustu starfsár Bjarna var hann hjá mér í aðgerð og hrognavinnslu. Hann hafði því starfað með okkur, þremur kynslóðum frá Löndum. Í aðgerðinni átti enginn möguleika í karlinn, hann sjötugur og strákarnir úr Stýrimannaskólanum trúðu ekki eigin augum, slíkur var krafturinn og vinnugleðin. Kafftímarnir og pásurnar voru stuttar hjá okkar manni, drakk kaffibolla, reykti eina sígarettu, kveikti í annarri, stóð upp og sagði: „Ási hvur djöfullinn er þetta, á að sitja hér í allan dag?“ Þá gat hann fengið eitraða sendingu frá samstarfsfólkinu sem var búið að fá nóg. Slíkum athugasemdum var alltaf svarað eins: „Éttan sjálfur,“ hurð kaffistofunnar skellt, hnífurinn stálaður, blóð- og slorslettur þeyttust út á gólf og upp í loft þegar hnífnum var brugðið aftur í gotraufína, skorið frá og innyflin lágu laus þegar hann renndi þeim nett í slorrennuna, auðvelt, hann var listamaður karlinn. Þá var Bjarni dixelmaður eins og þeir gerast bestir, sló til hrognatunnurnar, eitt högg og gjörðin flaug af, dixlinum skellt út við tunnustafinn og lokið laust. Hann hataði sænska hrognakaupmenn. Þegar þeir tóku hrognin og höfðu þrýst tunnurnar, stundum kvartað yfir vigtinni, fengu þeir kaldar kveðjur. Þá leit hann til mín, gretti sig og sagði gjarnan: „Ási eigum við ekki að festa nokkrar hrognabrækur utan á gjarðirnar fyrir helvítin?“ Hann þekkti það frá síldarárunum á Siglufirði að ágirndin var þeim í blóð borin.
Með Bjarna eru þeir að heyra sögunni til, orginalarnir, sem hófu starfsævina um fermingu við slíkar aðstæður að í dag væru menn lokaðir inni fyrir minni sakir en að bjóða tölvukynslóðinni upp á slíkt. Ég vil þakka honum samstarfið og tryggðina við okkur feðga alla tíð. Það var lærdómsríkt að vinna með slíkum manni sem gerði ekki meiri kröfur til lífsins og lífsgæðanna. Bjarni Bjarnason hefur barið nestið eftir langan vinnudag og þeir sem hann vann fyrir uppskáru trúlega meira en hann. Ég má til með að láta eina góða sögu fylgja. Bjarni var að drekka, í landlegu, með vini sínum sem átti veiðarfærakró á Siglufirði. Siggu var farið að leiðast drykkjan og fór í króna að finna Bjarna. Hún kom nokkrum sinnum en vel var fylgst með og Bjarni faldi sig þegar til hennar sást. Þeir félagarnir gerðust nú þreyttir á þessu og ákváðu að hóta henni með haglabyssu sem vinurinn átti. Aftur kom Sigga og Bjarni faldi sig á bak við beitustampa þegar hún birtist. Eftir smá þras við vininn tekur hann upp haglabyssuna og hótar henni ef hún láti þá félagana ekki í friði. Þegar hávaðinn var hvað mestur, lyfti hann byssunni og hleypir af upp í gegnum þakið til viðvörunar og hræðir Siggu út. Þá sprettur Bjarni á fætur og kallar: „Lá hún?“

Bjarni var ótrúlegur harðjaxl, sjómaður og verkamaður sem alla tíð vann eins og líkaminn þoldi. Hann þekkti ekki annað en að taka á í lífinu. Bjarni tengdist okkur feðgunum frá Löndum vináttu - og tryggðarböndum sem byggðust á þeirri virðingu sem við berum fyrir dugnaðarforkum og listamönnum til allra verka eins og Bjarni var. Pabbi og Bjarni kynntust fyrst þegar þeir voru saman hásetar á togaranum Elliða frá Siglufirði þar sem afi minn, [[Ásmundur Friðriksson]], var skipstjóri. Bjarni var skörinni hærra settur en pabbi, hann var hausari. Saltað var um borð og vinnan var svakaleg. Þessi smávaxni maður þótti mikill hausari sem beitti hausingarsveðjunni af list. Tvö nett hnífsbrögð inn með kinninni og hann reif hausinn af svo hnakkastykkið fylgdi með. Það hafði enginn við karlinum hvort heldur það var eftir fyrsta halið í túrnum eða það síðasta í skítabrælu á 35. degi og skipið orðið fullt upp í lúgur af flöttum saltfiski.
Hann var líka á Ingvari Guðjónssyni, Hafliða o. fl. skipum frá Siglufirði. Bjarni var listamaður til allra verka og umgengni. Það er líka list að vera góður sjómaður og afburða flatningsmaður. Hann var ekki listamaður eins og þeir sem sækja kaffihúsin og bulla út í eitt um einskis verða hluti og sötra bjór. Bjarni gerði minna af því að tala, hann gat verið glettinn og hláturmildur en lét sér oftast nægja að láta verkin tala og þegar hann fékk sér í glas þá var það ekki samkvæmt einhverjum Dagsbrúnartöxtum frekar en vinnan.
Þau Sigga og Bjarni fluttust til Vestmannaeyja í ársbyrjun 1964. Hann réði sig í skiprúm hjá pabba á Öðlingi Ve 202 og á þeim árum voru oft sagðar hetjusögur af honum í eldhúsinu á Grænuhlíð 18. Hann réri seinna á Elliðaey hjá [[Gísli Sigmarsson|Gísla Sigmars]], Baldri hjá [[Hannes Haraldsson|Hanna]] í [[Fagurlyst]] o.fl. Bjarni var fíngerður maður, hafði ekki þetta jaxlaútlit sem hann sannarlega var. Stakk aðeins við þegar hann gekk, hokinn og leit niður fyrir sig, gjóaði þó augunum annað slagið á samferðamenn sem honum komu ekkert við. Síðustu starfsár Bjarna var hann hjá mér í aðgerð og hrognavinnslu. Hann hafði því starfað með okkur, þremur kynslóðum frá Löndum. Í aðgerðinni átti enginn möguleika í karlinn, hann sjötugur og strákarnir úr Stýrimannaskólanum trúðu ekki eigin augum, slíkur var krafturinn og vinnugleðin. Kafftímarnir og pásurnar voru stuttar hjá okkar manni, drakk kaffibolla, reykti eina sígarettu, kveikti í annarri, stóð upp og sagði: „Ási hvur djöfullinn er þetta, á að sitja hér í allan dag?“ Þá gat hann fengið eitraða sendingu frá samstarfsfólkinu sem var búið að fá nóg. Slíkum athugasemdum var alltaf svarað eins: „Éttan sjálfur,“ hurð kaffistofunnar skellt, hnífurinn stálaður, blóð- og slorslettur þeyttust út á gólf og upp í loft þegar hnífnum var brugðið aftur í gotraufína, skorið frá og innyflin lágu laus þegar hann renndi þeim nett í slorrennuna, auðvelt, hann var listamaður karlinn. Þá var Bjarni dixelmaður eins og þeir gerast bestir, sló til hrognatunnurnar, eitt högg og gjörðin flaug af, dixlinum skellt út við tunnustafinn og lokið laust. Hann hataði sænska hrognakaupmenn. Þegar þeir tóku hrognin og höfðu þrýst tunnurnar, stundum kvartað yfir vigtinni, fengu þeir kaldar kveðjur. Þá leit hann til mín, gretti sig og sagði gjarnan: „Ási eigum við ekki að festa nokkrar hrognabrækur utan á gjarðirnar fyrir helvítin?“ Hann þekkti það frá síldarárunum á Siglufirði að ágirndin var þeim í blóð borin.
Með Bjarna eru þeir að heyra sögunni til, orginalarnir, sem hófu starfsævina um fermingu við slíkar aðstæður að í dag væru menn lokaðir inni fyrir minni sakir en að bjóða tölvukynslóðinni upp á slíkt. Ég vil þakka honum samstarfið og tryggðina við okkur feðga alla tíð. Það var lærdómsríkt að vinna með slíkum manni sem gerði ekki meiri kröfur til lífsins og lífsgæðanna. Bjarni Bjarnason hefur barið nestið eftir langan vinnudag og þeir sem hann vann fyrir uppskáru trúlega meira en hann. Ég má til með að láta eina góða sögu fylgja. Bjarni var að drekka, í landlegu, með vini sínum sem átti veiðarfærakró á Siglufirði. Siggu var farið að leiðast drykkjan og fór í króna að finna Bjarna. Hún kom nokkrum sinnum en vel var fylgst með og Bjarni faldi sig þegar til hennar sást. Þeir félagarnir gerðust nú þreyttir á þessu og ákváðu að hóta henni með haglabyssu sem vinurinn átti. Aftur kom Sigga og Bjarni faldi sig á bak við beitustampa þegar hún birtist. Eftir smá þras við vininn tekur hann upp haglabyssuna og hótar henni ef hún láti þá félagana ekki í friði. Þegar hávaðinn var hvað mestur, lyfti hann byssunni og hleypir af upp í gegnum þakið til viðvörunar og hræðir Siggu út. Þá sprettur Bjarni á fætur og kallar: „Lá hún?“

'''Ásmundur Friðriksson.'''

'''Ásmundur Friðriksson.'''

'''Sigurjón Ólafsson'''

'''[[Sigurjón Ólafsson frá Litlabæ|Sigurjón Ólafsson]]'''

'''F. 25. janúar 1918 - D. 14. ágúst 2005'''
[[Mynd:Sigurjón Ólafsson sj.blað.png|200px|thumb|Sigurjón Ólafsson]]

[[Sigurjón Ólafsson]] (Siggi í Bæ) var fæddur í [[Litlibær|Litlabæ]] , sonur [[Ólafur Ástgeirsson|Ólafs Ástgeirssonar]], bátasmiðs og sjómanns, f. 3. ágúst 1892, d. 8. apríl 1966 og [[Kristín Jónsdóttir|Kristínar Jónsdóttur]], sem átti ættir að rekja undir Fjöllin og til Skaftártungu, f. 19. apríl 1885, d. 17. september 1943.

Systkini Sigga voru, Magnea Sigurlaug, f. 19. nóvember 1911, d. 20. mars 1980, Ástgeir Kristinn (Ási í Bæ) f. 24. febrúar 1914, d. 1. mai 1985 og Sigrún f. 23. júlí 1924, d. 21. mars 1948. Seinni kona Ólafs var Guðrún Sigurðardóttir f. 9. september 1920, d. 19. apríl 1993. Sonur þeirra er Kristinn R. Ólafsson (í Madrid) f. 11. september 1952.

Systkini Sigga voru, Magnea Sigurlaug, f. 19. nóvember 1911, d. 20. mars 1980, [[Ási í Bæ|Ástgeir Kristinn]] (Ási í Bæ) f. 24. febrúar 1914, d. 1. mai 1985 og Sigrún f. 23. júlí 1924, d. 21. mars 1948. Seinni kona Ólafs var Guðrún Sigurðardóttir f. 9. september 1920, d. 19. apríl 1993. Sonur þeirra er [[Kristinn R. Ólafsson]] (í Madrid) f. 11. september 1952.

Tíu ára gamall fer Siggi í sveit til ættingja móður sinnar að Holti á Síðu og var þar nærfellt í fjögur ár. Hann var fermdur frá Prestbakkakirkju á Síðu og hafði þá lokið einnar viku skólanámi í sveitinni en drjúgu heimanámi.

Hjónin í Holti hétu Björn Runólfsson, hreppstjóri og Marín Þórarinsdóttir. Jón Björnsson rithöfundur var sonur þeirra. Annar sonur þeirra hét Runólfur og var prentari og leit Siggi á hann eins og bróður sinn. Siggi sagði mér að í Holti hafi hann átt sín bestu æskuár. Fólkið var einstaklega gott við hann og honum hefði aldrei verið skipað að gera hlutina heldur beðinn um að gera þetta eða hitt. Það var til þess að hann fór til snúninga með gleði og ánægju. Má segja að í Holti hafi Siggi lært áhrifaríka aðferð til að stjórna mannskap síðar á ævinni.
Þegar hann kemur heim byrjar hann að róa á trillum. Sautján ára gamall tekur hann við stjórn Hlýra VE 305 3,48 brl. trillu. Þessa trillu smíðaði faðir hans, Ólafur Ástgeirsson, en hann var afkastamikill og smíðaði hátt í fjögur hundruð báta á sinni löngu starfsævi.
Fyrsti vélbáturinn, sem Siggi var formaður á, hét Ófeigur VE 324, 21 brl, Síðan er hann með eftirtalda báta:
Herjólf VE 276, 22 brl, Sleipni VE 280, 11 brl. sem hann átti hlut í frá árinu 1946 þar til hann var seldur til Djúpavogs í ágúst 1949, Ágústu VE 350, 65 brl, Gottu VE 108, 35 brl, Gylfa VE 201, 47 brl, Öðling VE 202, 52 brl, sem hann tók við nýjum árið 1957. Síðan kaupir hann bát með [[Guðni Runólfsson|Guðna Runólfssyni]] frá [[Steinn|Steini]], og skírir hann Hrímni VE 30. Þessi bátur var Ófeigur, sem Siggi hafði verið með og var lengdur 1948 og var 28 brl. Siggi selur þennan bát 1961. Tekur við formennsku á Sævaldi SU 2, 53 brl. sem Alfreð og Kristján Gústafssynir, mágar hans, gerðu út frá Hornafirði. Árið 1966 kaupir hann Hvíting Ve 21, 7 brl. og er með hann næstu 19 árin. Árið 1985 selur hann Óla Tótu, syni sínum, Hvíting. Óli hafði róið með föður sínum í mörg ár og þekkti því bátinn vel. Hvítingur fórst á Landsuðurshrauninu 2. september 1987 í óvæntu austan óveðri og með honum félagarnir, Guðfinnur Þorsteinsson og Óli. Hann Óli var gæddur svo mikilli réttlætiskennd að við æskufélagar hans töldum víst að breyting yrði á kerfinu þegar hann hitti Alvaldið. Sama ár og hann selur Óla Hvíting, kaupir hann trilluna Byr VE 150 3,28 brl. Á Byr rær hann í 16 ár, til ársins 2001 og lýkur sjómennsku sinni sem staðið hafði í 69 ár, þá 83 ára. Ástæða þess að hann hætti, sagði hann vera að hann væri orðinn hálfþreyttur í fótunum.
Í mars 1941 giftist Siggi, Þórunni Gústafsdóttur, sem var ættuð frá Djúpavogi, fædd 4. desember 1914, dáin 2. mai 1995 (kölluð Tóta). Hún var flink saumakona og lét sig ekki muna um að sauma herraföt á karlana sína.
Hjónin í Holti hétu Björn Runólfsson, hreppstjóri og Marín Þórarinsdóttir. Jón Björnsson rithöfundur var sonur þeirra. Annar sonur þeirra hét Runólfur og var prentari og leit Siggi á hann eins og bróður sinn. Siggi sagði mér að í Holti hafi hann átt sín bestu æskuár. Fólkið var einstaklega gott við hann og honum hefði aldrei verið skipað að gera hlutina heldur beðinn um að gera þetta eða hitt. Það var til þess að hann fór til snúninga með gleði og ánægju. Má segja að í Holti hafi Siggi lært áhrifaríka aðferð til að stjórna mannskap síðar á ævinni.
Þegar hann kemur heim byrjar hann að róa á trillum. Sautján ára gamall tekur hann við stjórn Hlýra VE 305 3,48 brl. trillu. Þessa trillu smíðaði faðir hans, [[Ólafur Ástgeirsson]], en hann var afkastamikill og smíðaði hátt í fjögur hundruð báta á sinni löngu starfsævi.
Fyrsti vélbáturinn, sem Siggi var formaður á, hét Ófeigur VE 324, 21 brl, Síðan er hann með eftirtalda báta:
Herjólf VE 276, 22 brl, Sleipni VE 280, 11 brl. sem hann átti hlut í frá árinu 1946 þar til hann var seldur til Djúpavogs í ágúst 1949, Ágústu VE 350, 65 brl, Gottu VE 108, 35 brl, Gylfa VE 201, 47 brl, Öðling VE 202, 52 brl, sem hann tók við nýjum árið 1957. Síðan kaupir hann bát með [[Guðni Runólfsson|Guðna Runólfssyni]] frá [[Steinn|Steini]], og skírir hann Hrímni VE 30. Þessi bátur var Ófeigur, sem Siggi hafði verið með og var lengdur 1948 og var 28 brl. Siggi selur þennan bát 1961. Tekur við formennsku á Sævaldi SU 2, 53 brl. sem Alfreð og Kristján Gústafssynir, mágar hans, gerðu út frá Hornafirði. Árið 1966 kaupir hann Hvíting Ve 21, 7 brl. og er með hann næstu 19 árin. Árið 1985 selur hann [[Óli Kr. Sigurjónsson (Óli Tótu)|Óla Tótu]], syni sínum, Hvíting. Óli hafði róið með föður sínum í mörg ár og þekkti því bátinn vel. Hvítingur fórst á Landsuðurshrauninu 2. september 1987 í óvæntu austan óveðri og með honum félagarnir, Guðfinnur Þorsteinsson og Óli. Hann Óli var gæddur svo mikilli réttlætiskennd að við æskufélagar hans töldum víst að breyting yrði á kerfinu þegar hann hitti Alvaldið. Sama ár og hann selur Óla Hvíting, kaupir hann trilluna Byr VE 150 3,28 brl. Á Byr rær hann í 16 ár, til ársins 2001 og lýkur sjómennsku sinni sem staðið hafði í 69 ár, þá 83 ára. Ástæða þess að hann hætti, sagði hann vera að hann væri orðinn hálfþreyttur í fótunum.
Í mars 1941 giftist Siggi, [[Þórunn Gústafsdóttir|Þórunni Gústafsdóttur]], sem var ættuð frá Djúpavogi, fædd 4. desember 1914, dáin 2. mai 1995 (kölluð Tóta). Hún var flink saumakona og lét sig ekki muna um að sauma herraföt á karlana sína.
Hjónaband þeirra var farsælt og varð þeim þriggja barna auðið; Óli fæddur 7. ágúst 1940, lést 2. september 1987, Mary, veitingakona, fædd 26. júní 1946 og Sigrún, húsmóðir, fædd, 21. ágúst 1949.
Tóta var einstaklega glaðlynd og hjartahlý kona og var henni eðlislægt að vera sannfærð um að vinir barna hennar væru alltaf svangir og nutu margir góðs af því. Ekki hefur undirritaður smakkað betri kleinur en við eldhúsborðið á [[Sólnes|Sólnesi]].
Siggi í Bæ var lengst af sjómennskutíð sinni skipstjóri og var mjög farsæll í starfi, fiskaði alltaf vel, án streðs og fór vel með. Hann var maður hæglátur og lét lítið yfir sér en tilbúinn að ræða landsins gagn og nauðsynjar við vini sína sem ekki komu að tómum kofanum þegar hann var annars vegar. Stundum færði hann rök fyrir málstað sínum í vísuformi enda átti hann auðvelt með að yrkja eins og bróðir hans Ási í Bæ. Hann hafði eindregnar skoðanir á umgengni okkar um veiðislóðir í kringum landið og var ekki ánægður með þróun mála. Eins og fyrr sagði, hafði Siggi verið á trillum með föður sínum og frændum áður en hann tók við formennsku á stærri bátum og lærði það sem læra þarf um siglingu um sollinn sæ enda öruggur og gætinn stjórnandi alla tíð.
Það var því vel við hæfi að hann bauðst til að fara út að Faxaskeri að kveldi 7. janúar 1950, á Gottu VE 108, sem var 35 tonna bátur, í SA 15 vindstigum, og halda þar sjó með fullum ljósum þeim tveim mönnum til stuðnings og uppörvunar sem komust upp á Faxaskerið, eftir að Helgi VE 333 hafði strandað þar og brotnað í spón. Í bókinni Þrautgóðir á raunastund er þessi lýsing: „Um nóttina bárust þær fréttir að hætt væri að heyrast í vélbátnum Gottu. Stöðugt var reynt að kalla bátinn upp en ekkert svar fékkst. Talið var hugsanlegt að loftnet hans hefði slitnað niður í fárviðrinu en um tíma var óttast að eitthvað hefði komið fyrir. Um hádegi bárust þó fréttir um að allt væri í lagi um borð í bátnum og höfðu tilgáturnar um að loftnetin hefðu slitnað niður reynst réttar. Um kl. níu um kvöldið kom svo Gotta inn í höfnina og hafði þá verið við Faxasker í rúman sólarhring.“ Það þurfti röska og hugaða menn til að fara út úr höfninni í Eyjum fyrir gos í 15 vindstigum á 35 tonna báti. Átta árum síðar, þegar ég var háseti hjá Sigga, á Öðlingi VE 202, spurði ég hann um þennan sólarhring í lífi hans. Hann sagði að þetta hefði verið hans versta nótt til sjós. Vita ekki hvort mennirnir voru lífs eða liðnir, sambandslausir við land, vegna þess að loftnetin fuku út í veður og vind. Í mestu vindhviðunum mældust 17 vindstig á Höfðanum en þá er vindhraðinn kominn í 100 mílur á klukkustund eða allt að því jafn mikill og er í fellibyljum. Er sjaldgæft að slík ofsaveður geri hér við land. Sjá svo eldbjarmann austur á Eyju og frá þeim séð eins og allur austurbærinn stæði í ljósum logum. Þessa nótt brann Hraðfrystistöðin til grunna og þeir sambandslausir og urðu háðir ímyndunaraflinu. Aldrei kom til greina að yfirgefa skerið með vonarneista þeirra sem á Skerinu voru.
Ég var háseti hjá Sigga á Gylfa VE 201 og Öðlingi VE 202 síðast á vertíð 1958. Líklega hef ég notið þess að ég var æskufélagi sonar hans, Óla Tótu, að ég fékk pláss hjá honum svo ungur en mjög mikið var sótt í skipsrúm hjá honum. Og ekki að ástæðulausu. Hann fiskaði alltaf vel og lagði mikið á sama. Átti sín mið suður á Eyjabanka þar sem meðalþunginn á þorskinum var 8 til 10 kíló. Var því stundum rólegt í byrjun netavertíðar meðan beðið var eftir að hann kæmi. Ósjaldan vorum við komnir að landi um fjögur á daginn enda aðeins með sex fimmtán neta trossur. Þá spurði einn kollegi hann hvers vegna hann bætti ekki við einni trossu. Þá svaraði Siggi á þann veg að ef hann væri með miðlungs mannskap, kæmi hann að landi þremur tímum seinna. Hann ætlaði ekki að refsa mönnum sínum fyrir dugnað. Svona hugsaði hann, ekkert streð og lá ekki mikið á. Svo gaf hann sig og hver trossa skilaði 120 tonnum.

Eftir að Tóta lést 1995, bjó Siggi einn vestur á Foldahrauni. Þannig vildi hann hafa það og því fékk enginn breytt. Nokkur ár eru síðan við mættumst á göngu suður á Breiðabakka. Mér þótti hann vera óvenju frískur í spori og hafði orð á því. Hann svaraði því til að undanfarna mánuði hefði hann haft það fyrir reglu að kaupa eina rauðvínsflösku í viku hverri til að örva blóðrásina. Eftir stundar þögn sagði ég: „Ég hef ekki smakkað vín í nokkur ár.“ Þá leit hann á mig og sagði ósköp rólega: „Þú mátt nú ekki drepa þig á þessu Óskar minn,“ og skildi mig eftir ráðvilltan. Í dag er ég engu nær um hvort þessi orð voru sögð í alvöru eða af spaugaranum Sigga í Bæ. Hallast þó helst að því að hann hafi talið að vinur hans ætti eftir „að verða hálf þreyttur í fótunum.“

Eftir að Tóta lést 1995, bjó Siggi einn vestur á Foldahrauni. Þannig vildi hann hafa það og því fékk enginn breytt. Nokkur ár eru síðan við mættumst á göngu suður á [[Breiðabakki|Breiðabakka]]. Mér þótti hann vera óvenju frískur í spori og hafði orð á því. Hann svaraði því til að undanfarna mánuði hefði hann haft það fyrir reglu að kaupa eina rauðvínsflösku í viku hverri til að örva blóðrásina. Eftir stundar þögn sagði ég: „Ég hef ekki smakkað vín í nokkur ár.“ Þá leit hann á mig og sagði ósköp rólega: „Þú mátt nú ekki drepa þig á þessu Óskar minn,“ og skildi mig eftir ráðvilltan. Í dag er ég engu nær um hvort þessi orð voru sögð í alvöru eða af spaugaranum Sigga í Bæ. Hallast þó helst að því að hann hafi talið að vinur hans ætti eftir „að verða hálf þreyttur í fótunum.“

Þeim fækkar sem ólust upp á kreppuárum síðustu aldar og litbrigði daganna fölna.

Blessuð sé minning Sigga í Bæ.

Blessuð sé minning Sigga í Bæ.

'''Óskar Þórarinsson.'''

'''[[Óskar Þórarinsson (Háeyri)|Óskar Þórarinsson]].'''

'''Jón Valgarð Guðjónsson'''

'''[[Jón Valgarð Guðjónsson]]'''

'''F. 8. október 1931 - D. 28. nóvember 2005'''
[[Mynd:Jón Valgarð Guðjónsson sj.blað.png|200px|thumb|Jón Valgarð Guðjónsson]]

[[Jón Valgarð Guðjónsson|Gæsi]], eins og hann var alltaf kallaður, fæddist í Vestmannaeyjum 8. október 1931 og lést þar 28. nóvember 2005. Foreldrar hans voru hjónin [[Guðjón Jónsson]] frá Vinaminni í Austur - Landeyjum, vélstjóri og útgerðarmaður og nágrannakona hans úr Landeyjunum, [[Marta Jónsdóttir]], húsmóðir, frá Búðarhólshjáleigu.

Tvö yngri systkini hans eru Addý Jóna og Hafþór. Kornungur hóf Gæsi sjómennsku sumarið 1945, 14 ára gamall, á síld norðan lands, á Hilmi VE og næstu 2 sumrin á Sævari VE og það þriðja á Sjöfn VE. Síðan, frá 1950 allt árið, á Andvara, Bjarnarey og Gullveigu. Hann stundaði sjóinn í næstum því 60 ár, lengst sem skipstjóri, þegar hann lauk starfsævinni 2004, hjá tengdasyni sínum Gunnari Þór Friðrikssyni, á Fönix VE 24.

Eftir skyldunám lauk hann vélstjórnarnámi á námskeiði í Vestmannaeyjum og Hinu meira prófi fiskimanna frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1954. Hann varð fljótt skipstjóri, árið 1955, á Blátindi VE 21 sem faðir hans og Ágúst Ólafsson, vélstjóri þar um borð, áttu. Og eftir að Blátindur var seldur, var hann með Sæbjörgu VE og Hafbjörgu VE fyrir [[Ingólfur Theódórsson|Ingólf Theodórsson]]. Eftir árin hjá Ingólfi keyptu þeir feðgar, Gæsi og Guðjón, árið 1959, 60 tonna blöðrubát sem þeir gáfu nafnið Hafþór Guðjónsson VE 265 og var Gæsi með hann á línu, netum og síld eins og verið hafði á hinum bátunum. Eftir að þeir seldu Hafþór Guðjónsson 1963 var Gæsi með Reyni VE 15 fyrir bræðurna Júlíus og Pál Ingibergssyni í Hjálmholti, Engey RE 11 fyrir Einar Sigurðsson, Ísleif 4. VE 463 fyrir Ársæl Sveinsson, síðar aftur hjá útgerð Einars Sigurðssonar með Guðmund VE 29. Hann var svo undir lok sjómennskunnar stýrimaður og skipstjóri á Baldri VE 24 og síðast, eins og áður kom fram, á Fönix VE 24.

Eftir skyldunám lauk hann vélstjórnarnámi á námskeiði í Vestmannaeyjum og Hinu meira prófi fiskimanna frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1954. Hann varð fljótt skipstjóri, árið 1955, á Blátindi VE 21 sem faðir hans og [[Ágúst Ólafsson (vélstjóri)|Ágúst Ólafsson]], vélstjóri þar um borð, áttu. Og eftir að Blátindur var seldur, var hann með Sæbjörgu VE og Hafbjörgu VE fyrir [[Ingólfur Theódórsson|Ingólf Theodórsson]]. Eftir árin hjá Ingólfi keyptu þeir feðgar, Gæsi og Guðjón, árið 1959, 60 tonna blöðrubát sem þeir gáfu nafnið Hafþór Guðjónsson VE 265 og var Gæsi með hann á línu, netum og síld eins og verið hafði á hinum bátunum. Eftir að þeir seldu Hafþór Guðjónsson 1963 var Gæsi með Reyni VE 15 fyrir bræðurna [[Júlíus Ingibergsson (Hjálmolti)|Júlíus]] og [[Páll Ingibergsson (Hjálmholti)|Pál Ingibergssyni]] í Hjálmholti, Engey RE 11 fyrir [[Einar ríki|Einar Sigurðsson]], Ísleif 4. VE 463 fyrir [[Ársæll Sveinsson|Ársæl Sveinsson]], síðar aftur hjá útgerð Einars Sigurðssonar með Guðmund VE 29. Hann var svo undir lok sjómennskunnar stýrimaður og skipstjóri á Baldri VE 24 og síðast, eins og áður kom fram, á Fönix VE 24.

Árið 1972 fór Gæsi í útgerð með Einari Sigurðssyni þegar þeir létu smíða 150 tonna stálbát á Akureyri sem fékk nafnið Gunnar Jónsson VE 500. Síðar eignaðist hann annan Gunnar Jónsson VE 555 með Sigurði Georgssyni.

Árið 1972 fór Gæsi í útgerð með Einari Sigurðssyni þegar þeir létu smíða 150 tonna stálbát á Akureyri sem fékk nafnið Gunnar Jónsson VE 500. Síðar eignaðist hann annan Gunnar Jónsson VE 555 með [[Sigurður Georgsson|Sigurði Georgssyni]].

Gæsi var orðlagður dugnaðarmaður og góður fiskimaður. Árið 1970 varð hann fiskikóngur Vestmannaeyja á Ísleifi 4. Var með mest aflaverðmæti allra báta frá Vestmannaeyjum það ár. Gæsi var alltaf hlýr, léttur og orðheppinn. Það var gott að vera í návist hans. Saman vorum við á gamla Reyni á síld fyrir norðan sumarið 1956 þar sem hann var stýrimaður. Úthaldið var gott, ekki síst fyrir léttleika hans og skemmtileg tilsvör. Árið 1998 var hann gerður að heiðursfélaga í S/s Verðandi fyrir vel unnin störf fyrir félagið og á sjónum. Gæsi fylgdist vel með íþróttum, sérstaklega hand - og fótbolta og mætti alltaf þegar hægt var á vellina. ÍBV og Arsenal voru liðin sem allt snerist um og svo var hann alltaf viðstaddur þegar barnabörnin tóku þátt í kappleikjum.

Daginn fyrir andlát hans hittumst við á förnum vegi og áttum tal saman. Það var á léttu nótunum eins og hans var von og vísa en að mér dytti í hug að það væri næst síðasti dagurinn í lífi hans, var víðs fjarri.

Lína 58: Lína 58:
Þau eiga í aldursröð: Ásdísi, Mörtu, Gunnar, Guðjón Val, Sigurbjörgu og Valgarð. Mikill harmur var að þeim kveðinn þegar þau misstu 2 syni, Guðjón Val tæplega 6 mánuða 26. mars 1963 og Gunnar, tæplega 10 ára, 23. mai 1970.

Gæsa er sárt saknað. Léttur og góður samferðamaður fallinn frá á góðum aldri. Sannarlega hefði hann átt eftir að eiga góð ár með vinum og fjölskyldu eftir allar fjarvistirnar á sjónum. Hann átti mörg áhugamál í félagsstarfi og pútti hjá eldri borgurum, fótbolta, handbolta og vel var fylgst með fiskiríi og öllu sem var um að vera á sjónum. Fjölskyldu hans eru sendar dýpstu samúðarkveðjur.

'''Friðrik Ásmundsson'''

'''[[Friðrik Ásmundsson]]'''

'''Jón Gunnarsson'''

'''Jón Gunnarsson'''

'''F. 2. desember 1927 - D. 4. desember 2005'''
[[Mynd:Jón Gunnarsson sj.blað.png|200px|thumb|Jón Gunnarsson]]

[[Jón Gunnarsson]], skipasmíðameistari, í daglegu tali kallaður Jón á Horninu eftir æskuheimili hans var vinur minn og afabróðir. Hann fæddist hér í Eyjum 2. desember 1927 og lést á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 4. desember 2005.
Foreldrar hans voru [[Gunnar Marel Jónsson]], skipasmíðameistari og [[Sigurlaug Pálsdóttir]], húsmóðir. Hann átti 14 systkini þar af 3 hálfsystkini, samfeðra. Eftirlifandi eru systurnar Guðmunda, Svava og Þórunn. Jón fór ungur til sjós og lauk vélstjóraprófi 1945. Eftir það var hann vélstjóri á Erlingi 1. og Erlingi 2. sem faðir hans átti með Sighvati Bjarnasyni skipstjóra. Einnig á nýsköpunartogurum Vestmannaeyinga, Elliðaey og Bjarnarey og bátunum Jötni, Mýrdælingi og Heimakletti.

[[Jón Gunnarsson]], skipasmíðameistari, í daglegu tali kallaður Jón á [[Hornið|Horninu]] eftir æskuheimili hans var vinur minn og afabróðir. Hann fæddist hér í Eyjum 2. desember 1927 og lést á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík 4. desember 2005.
Foreldrar hans voru [[Gunnar Marel Jónsson]], skipasmíðameistari og [[Sigurlaug Pálsdóttir]], húsmóðir. Hann átti 14 systkini þar af 3 hálfsystkini, samfeðra. Eftirlifandi eru systurnar Guðmunda, Svava og Þórunn. Jón fór ungur til sjós og lauk vélstjóraprófi 1945. Eftir það var hann vélstjóri á Erlingi 1. og Erlingi 2. sem faðir hans átti með [[Sighvatur Bjarnason (Ási)|Sighvati Bjarnasyni]] skipstjóra. Einnig á nýsköpunartogurum Vestmannaeyinga, Elliðaey og Bjarnarey og bátunum Jötni, Mýrdælingi og Heimakletti.

Eftir árin á sjónum vann Jón lengi hjá föður sínum í [[Dráttarbraut Vestmannaeyja]] og lærði þar skipasmíðar og lauk sveinsprófi í skipasmíði 1957 og fékk meistararéttindi 1962. Smíðar voru hans ævistarf frá þeim tíma. Það var oft mikið að gera í slippnum sem þjónaði stórum flota á árum áður og einnig var unnið við nýsmíðar á bátum.

Kona Jóns er [[Guðbjörg Guðlaugsdóttir]] og byggðu þau sér hús við Helgafellsbraut 25. Þau eignuðust synina Ragnar, flugvirkja, og Ægi, skipstjóra hjá Eimskipum, og eru sonarsynirnir orðnir 5. Jón talaði mikið um strákana sína og voru afastrákarnir í miklu uppáhaldi.
Um 1970 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og var Jón lengi hjá Eimskipum á Brúarfossi sem timburmaður og sigldi til Ameríku með freðfisk. Eftir að Jón hætti til sjós, vann hann í mörg ár í Daníelsslipp í Reykjavík en síðustu starfsárin við smíðar hjá Flugleiðum.

Jón var rólegur í framkomu, vel yfirvegaður, en hafði samt ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og tók alltaf málstað þeirra sem minna máttu sín. Hann hafði gott skopskyn og var hafsjór af fróðleik um nánast allt milli himins og jarðar. Það var gaman að hlusta á hann segja frá liðnum tíma en hann lagði samt alltaf áherslu á að það væri framtíðin sem skipti öllu máli. Ég hitti Jón yfirleitt þegar ég fór til Reykjavíkur annaðhvort hjá Svövu systur hans, þar sem hann var daglegur gestur, eða í Kolaportinu þar sem gamlir Eyjapeyjar hittast á laugardags - og sunnudagsmorgnum til að spjalla og fá fréttir og þá sérstaklega héðan úr Eyjum.
Ég votta fjölskyldu Jóns samúð mína.

'''Tryggvi Sigurðsson'''

'''[[Tryggvi Sigurðsson]]'''

'''Marinó Guðmundsson'''

'''Marinó Guðmundsson'''

Lína 73: Lína 73:
Með fáeinum orðum langar mig að minnast vinar míns, [[Marinó Guðmundsson|Marinós Guðmundssonar]] eða „Malla skó“ eins og hann var oftast kallaður á meðal Vestmannaeyinga og vina.

Marinó var fæddur í Vestmannaeyjum, 28. nóvember 1927, sonur hjónanna Jóhönnu Ólafsdóttur og [[Guðmundur Jónsson|Guðmundar Jónssonar]] skósmiðs, sem bjuggu við Hilmisgötu í Eyjum. Nokkru eftir 1950 fluttu þau hjón að Selfossi og áttu þar heimili upp frá því. Þau eignuðust þrjá syni, og var Marinó þeirra elstur, þá Björgvin, f. 1929, d. 2005 og yngstur var Ólafur, f. 1934.

Við Malli vorum fjarskyldir og tengdumst í ætt Guðrúnar ömmu minnar á Búastöðum og Kristínar í Litlabæ, en Marinó var frændrækinn og hafði mikinn áhuga á ættfræði og afdrifum eins frænda okkar sem hafði farið til Salt Lake City í Utah í hópi einna fyrstu landnemanna þangað. Fór Marinó eitt sinn í ferð til Utah, hitti þar frændur og kynnti sér söguna af eigin raun. Einnig áttum við sameiginleg áhugamál, bækur og Vestmannaeyjar. Marinó lauk prófi sem loftskeytamaður árið 1947 og var fyrsti loftskeytamaður á Vestamannaeyja-togaranum Elliðaey VE 10.

Við Malli vorum fjarskyldir og tengdumst í ætt Guðrúnar ömmu minnar á [[Búastaðir|Búastöðum]] og Kristínar í [[Litlibær|Litlabæ]], en Marinó var frændrækinn og hafði mikinn áhuga á ættfræði og afdrifum eins frænda okkar sem hafði farið til Salt Lake City í Utah í hópi einna fyrstu landnemanna þangað. Fór Marinó eitt sinn í ferð til Utah, hitti þar frændur og kynnti sér söguna af eigin raun. Einnig áttum við sameiginleg áhugamál, bækur og Vestmannaeyjar. Marinó lauk prófi sem loftskeytamaður árið 1947 og var fyrsti loftskeytamaður á Vestamannaeyja-togaranum Elliðaey VE 10.

Mér er í fersku minni þegar þetta glæsilega skip sigldi úr höfn í Vestmannaeyjum í sína fyrstu veiðiferð. Það var austan kaldi og Elliðaey sigldi á drjúgri ferð svo að freyddi um báða bóga. Við vorum nokkrir strákar austur á Skansi og margir okkar töldu að ekki væri til meira hnoss en að vera skipsmaður þar um borð.

Jafnframt námi í Loftskeytaskólanum var Malli í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi, en hann var sérstaklega músíkalskur og spilaði á trompet. [[Guðni Hermannsen|Guðni heitinn Hermansen]], málari og músíkant, var besti vinur Malla; spiluðu þeir saman í hljómsveit og brölluðu margt.

Lína 82: Lína 82:
Eftirlifandi eiginkona Marinós Guðmundssonar er Guðrún Guðmundsdóttir kjólameistari. Ég sendi Guðrúnu, öllum ættingjum og afkomendum Marinós Guðmundssonar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Marinós Guðmundssonar. Hann hvíli í friði

'''Guðjón Ármann Eyjólfsson'''

'''[[Guðjón Ármann Eyjólfsson]]'''

'''Már Guðlaugur Pálsson'''

'''Már Guðlaugur Pálsson'''

Lína 92: Lína 92:
Þegar ég minnist Más bróður míns, sveipast um hugann blær hinna liðnu daga þegar við vorum að alast upp í stórum systkinahópi sem var eins og öflug keðja og hver hlekkur hélt hinum saman svo samrýmd vorum við.

Már var alla tíð hlédrægur og tamdi sér nægjusemi. Hann ræktaði skyldur sínar í kyrrþey og gerði hófsamlegar kröfur til lífsins. Hann gat orðið bitur ef honum fannst eitthvað gert á hlut sinn en hans ríka réttlætiskennd hafði sýnt honum að allt var ekki öðrum að kenna. Þegar Már komst á unglingsár, hafði hann þegar gert upp hug sinn hvað varðaði framtíðina, hann ætlaði að sér að verða sjómaður eins og faðir hans og eldri bróðir. Sautján ára gamall er hann skráður aðstoðarmatsveinn á ms. Helgafell sem hlutafélagið Sæfell gerði út. En þótt hraustur væri þá bilaði heilsan og var hann um tíma á Vífilstöðum. En hinn hrausti líkami hans vann sig upp úr veikindunum og náði sér að fullu.
Fljótlega, eftir að hann kom heim aftur, byrjaði hann aftur á sjónum. Svo kom haustið og Már fór í siglingu sem háseti á mótorbátnum Suðurey. Mikið vorum við yngri bræður hans eftirvæntingafullir á komu hans því við vissum að eins og í öðrum siglingum, myndi hann gleðja okkur með gjöfum. Það var um nótt sem hann vakti okkur og útdeildi gjöfum. Og glæsilegar fannst okkur þær, gylltar knallettubyssur með rauðu skapti alveg eins og hetjan okkar í villta vestrinu handlék af svo mikilli fimi. Auðvitað vakti þetta mikla athygli meðal leikfélaga sem öfunduðu okkur af þessum miklu gersemum.

Um tvítugt fór Már í útgerð með Hlöðveri Helgasyni og gerðu þeir um tíma út vélbátinn Vin sem var í eigu [[Árni Finnbogason|Árna Finnbogasonar]] í Hvammi við Kirkjuveg. En síðar, um 1952, réð hann sig á Vonina með þeim bræðrum frá Holti og réri lengi með þeim. Einn bræðranna, Guðmundur, var skipstjóri. Hafði Már mikið álit á honum og taldi hann einn útsjónarsamasta skipstjóra  sem hann hafði kynnst.

Um tvítugt fór Már í útgerð með [[Hlöðver Helgason (Hamri)|Hlöðveri Helgasyni]] og gerðu þeir um tíma út vélbátinn Vin sem var í eigu [[Árni Finnbogason|Árna Finnbogasonar]] í Hvammi við Kirkjuveg. En síðar, um 1952, réð hann sig á Vonina með þeim bræðrum frá Holti og réri lengi með þeim. Einn bræðranna, [[Guðmundur Vigfússon (Holti)|Guðmundur]], var skipstjóri. Hafði Már mikið álit á honum og taldi hann einn útsjónarsamasta skipstjóra  sem hann hafði kynnst.

Síðan tók hver báturinn við af öðrum og var hann oftast skráður sem vélstjóri. Þar voru m.a. Sindri VE 203, Maggý VE 111, Kári VE 47, Andvari VE 101 og Sæbjörg VE 50. Einnig réri hann lengi með [[Daníel W. Fisher|,Villa Fisher]], öðlingsmanni frá Grímsey, sem var skipstjóri á Hringveri VE 393, 127 brl sem var í eigu [[Helgi Benediktsson|Helga Benediktssonar]]. Þegar Villi flutti sig yfir á ms. Engey RE 11 og síðar á ms. Akurey RE 6, fylgdi Már með í bæði skiptin. En þeir bátar voru í eigu [[Einar Sigurðsson|Einars ríka]]. Þegar Villi síðan hóf sína eigin útgerð og gerði út vélbátinn Kóp VE 11, var Már sá fyrsti sem hann réði til sín.

Árið 1971 keyptu hann og tveir bræður hans, Einar og Guðmundur, ásamt mági þeirra, Henry, vélbát, sem var 40 brl af Einari ríka og nefndu hann Draupni VE 551. Árið 1973 seldi Henry bræðrunum sinn hlut í útgerðinni. Árið 1975 urðu síðan nokkur þáttaskil hjá þeim bræðrum þegar þeir keyptu sér stærri bát frá Stykkishólmi sem hét Sigurður Sveinsson og var 73 brl að stærð og skírðu bátinn Draupni VE 550. Þann bát gerðu þeir bræður út til ársins 1990, að þeir seldu Magnúsi Kristinssyni bátinn.

Árið 1971 keyptu hann og tveir bræður hans, Einar og Guðmundur, ásamt mági þeirra, Henry, vélbát, sem var 40 brl af Einari ríka og nefndu hann Draupni VE 551. Árið 1973 seldi Henry bræðrunum sinn hlut í útgerðinni. Árið 1975 urðu síðan nokkur þáttaskil hjá þeim bræðrum þegar þeir keyptu sér stærri bát frá Stykkishólmi sem hét Sigurður Sveinsson og var 73 brl að stærð og skírðu bátinn Draupni VE 550. Þann bát gerðu þeir bræður út til ársins 1990, að þeir seldu [[Magnús Kristinsson (útgerðarmaður)|Magnúsi Kristinssyni]] bátinn.

Eftir fráfall Einars (d. 1989) fóru Már og Guðmundur í smábátaútgerð og létu smíða fyrir sig plastbát sem þeir gerðu út í fáein ár. Og enn héldu þeir sig við nafnið á hring Óðins sem þeir töldu happasælt þrátt fyrir ýmis óhöpp sem ekki gera boð á undan sér.

Mannkostir Más bera vitni um góðhjartaðan mann sem aldrei mátti neitt aumt sjá. Hann hafði líka þann eiginleika að vega ekki að þeim sem minna máttu sín. Slíkt er öllum auði betri því í skugganum af gleðinni standa margir.

Lína 100: Lína 100:
Brimaldan brotnar við ströndina þar sem spor hans liggja og þótt tröllaukinn veðrahamur og rísandi hafaldan skelli á bergi bláu þá eru átthagarnir ávallt fegurstir. Við systkinin þökkum þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Ég efast ekki um að við fótskör almættisins hjá lindinni tæru bíði foreldrar okkar og taki þig í faðm sinn.

Far vel til fegurri heima, kæri bróðir.

Far vel til fegurri heima, kæri bróðir.

'''Kristinn Viðar Pálsson'''

'''[[Kristinn Pálsson (á heflinum)|Kristinn Viðar Pálsson]]'''

'''[[Leó Ingvarsson]]'''

'''[[Leó Ingvarsson]]'''

Lína 117: Lína 117:
'''Unnar Jónsson'''

'''Unnar Jónsson'''

'''F. 7. mars 1957 - D. 6. október 2006'''
[[Mynd:Unnar Jónsson sj.bað.png|200px|thumb|Unnar Jónsson]]

Unnar Jónsson fæddist í Neskaupstað 7. mars 1957. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6. október 2006. Foreldrar hans voru Vilborg Sigurjónsdóttir, f. 25. júní 1921, d. 13. ágúst 1997 og Jón Pálsson, f. 20. desember 1919, d. 27. október 2003. Systkini Unnars eru Sigurjón, f. 14. júní 1941, d. 12. mars 1994, Steinunn, f. 7. júlí 1942, Pálmar, f. 16. júlí 1946 og Þorsteinn, f. 23. ágúst 1949.

[[Unnar Jónsson]] fæddist í Neskaupstað 7. mars 1957. Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6. október 2006. Foreldrar hans voru Vilborg Sigurjónsdóttir, f. 25. júní 1921, d. 13. ágúst 1997 og Jón Pálsson, f. 20. desember 1919, d. 27. október 2003. Systkini Unnars eru Sigurjón, f. 14. júní 1941, d. 12. mars 1994, Steinunn, f. 7. júlí 1942, Pálmar, f. 16. júlí 1946 og Þorsteinn, f. 23. ágúst 1949.

Sonur Unnars og Birnu Sigfúsdóttur er Sigfús, f. 5. mars 1978. Synir hans og Hjördísar Pálsdóttur eru Anton Máni, f. 2001 og Adam Smári, f. 2004. Eiginkona Unnars er Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir, f. á Akureyri 17. apríl 1964. Foreldrar hennar eru Brynjar Einarsson, f. 17. september 1936, d. 27. júní 1984 og Guðrún Ólafsdóttir, f. 29. júní 1944. Systkini hennar eru Benný, f. 1956 (samfeðra), Ólafur, f. 1965 og Helgi, f. 1973. Synir Unnars og Ingibjargar eru Brynjar Smári, f. 1. október 1984 og Gunnar Ingi, f. 11. febrúar 1990.

Unnar Jónsson útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum í Vestmannaeyjum árið 1989. Hann starfaði alla sína ævi á sjó. Hann starfaði lengst af sjómannsferilsins á bátum sem gerðir voru út frá Eyjum. Lengst af starfaði hann á Hugni og einnig Jóni Vídalín. Síðasta skipsrúm sem hann var í var á Bylgju VE 75.

Lína 134: Lína 134:
'''Steingerður Jóhannsdóttir'''

'''Steingerður Jóhannsdóttir'''

'''F. 27. júlí 1919 - D. 21. október 2005'''
[[Mynd:Steingerður Jóhannsdóttir sj.blað.png|200px|thumb|Steingerður Jóhannsdóttir]]

[[Steingerður Jóhannsdóttir|Steingerður]] fæddist á Brekku í Vestmannaeyjum 27. júlí 1919. Hún var smá vexti við fæðingu og bar sig þannig að henni var vart hugað líf. En annað sannaði hún með seiglu sinni og komst vel á legg. Foreldrar hennar voru Kristín Árnadóttir f. 17. 9. 1878, d. 20. 09. 1926 og Jóhann Jónsson frá Brekku í Vestmannaeyjum f. 20. 05. 1877, d. 13. 01. 1931. Steingerður var yngst 12 systkina en af þeim komust níu til fullorðinsára. Þau eru nú öll látin.

[[Steingerður Jóhannsdóttir|Steingerður]] fæddist á Brekku í Vestmannaeyjum 27. júlí 1919. Hún var smá vexti við fæðingu og bar sig þannig að henni var vart hugað líf. En annað sannaði hún með seiglu sinni og komst vel á legg. Foreldrar hennar voru [[Kristín Árnadóttir (Brekku)|Kristín Árnadóttir]] f. 17. 9. 1878, d. 20. 09. 1926 og [[Jóhann Jónsson (Brekku)|Jóhann Jónsson]] frá [[Brekka|Brekku]] í Vestmannaeyjum f. 20. 05. 1877, d. 13. 01. 1931. Steingerður var yngst 12 systkina en af þeim komust níu til fullorðinsára. Þau eru nú öll látin.

Steingerður var ung er hún missti foreldra sína, sjö ára er móðir hennar lést og á ellefta ára er faðir hennar lést. Hún var send í sveit undir Eyjafjöllum og var þar um tíma. Síðar flutti hún til Engilberts (Engla) bróður sins og Margrétar fyrri konu hans. Bjó hún hjá þeim í Vestmannaeyjum og flutti síðar með þeim til Reykjavíkur.

Steingerður var ung er hún missti foreldra sína, sjö ára er móðir hennar lést og á ellefta ára er faðir hennar lést. Hún var send í sveit undir Eyjafjöllum og var þar um tíma. Síðar flutti hún til [[Engilbert Jóhannsson (Brekku)|Engilberts]] (Engla) bróður sins og Margrétar fyrri konu hans. Bjó hún hjá þeim í Vestmannaeyjum og flutti síðar með þeim til Reykjavíkur.

Sem ung kona vann Steingerður á Uppsalakjallaranum í Reykjavík og kynntist menningu höfuðborgarinnar á hernámsárunum. Þar varð hún ástfangin af Earol Gilbert Coiner frá Virginíu í Bandaríkjunum. Hann þjónaði hér á landi í hernum í seinna stríði. Þau eignuðust eina dóttur, Mary Kristín Coiner, f. 05. 07. 1943. Steingerður flytur árið 1948 aftur til Eyja með dóttur sinni, Mary. En þremur árum síðar fer Steingerður til Keflavíkur og hefur störf á hótelinu á Keflavíkurflugvelli. Dóttur sína skilur hún eftir í Eyjum hjá Engilbert bróður sínum og Öddu seinni konu hans.

Steingerður gekk ótroðnar slóðir á ýmsum tímum ævinnar, fór aðrar leiðir en mörg systkinanna og aðrir ættingjar. Eftir að hafa starfað um tíma á Keflavíkurflugvelli, ákveður Steingerður að fara til sjós. Sjómannsferilinn hóf hún sumarið 1954 sem matsveinn á Berg VE-44 (áður Ásþór NS-9) sem var í eigu Kristins Pálssonar, systursonar Steingerðar, og Magnúsar Bergssonar, bakarameistara og tengdaföður Kristins. Bergur var einn af hinum svokölluðu Svíþjóðarbátum, smíðaður í Svíþjóð 1946, en bátinn keyptu þeir til Eyja 1954 og hófu síldveiðar þá um sumarið. Steingerður var á Berg VE-44 í fjögur sumur, eða allt til ársins 1957. Þess má geta að Bergur fórst þann 6. desember 1962 úti af Malarrifi á Snæfellsnesi. Mannbjörg varð.

Steingerður gekk ótroðnar slóðir á ýmsum tímum ævinnar, fór aðrar leiðir en mörg systkinanna og aðrir ættingjar. Eftir að hafa starfað um tíma á Keflavíkurflugvelli, ákveður Steingerður að fara til sjós. Sjómannsferilinn hóf hún sumarið 1954 sem matsveinn á Berg VE-44 (áður Ásþór NS-9) sem var í eigu [[Kristinn Pálsson (skipstjóri)|Kristins Pálssonar]], systursonar Steingerðar, og Magnúsar Bergssonar, bakarameistara og tengdaföður Kristins. Bergur var einn af hinum svokölluðu Svíþjóðarbátum, smíðaður í Svíþjóð 1946, en bátinn keyptu þeir til Eyja 1954 og hófu síldveiðar þá um sumarið. Steingerður var á Berg VE-44 í fjögur sumur, eða allt til ársins 1957. Þess má geta að Bergur fórst þann 6. desember 1962 úti af Malarrifi á Snæfellsnesi. Mannbjörg varð.

Steingerður tók sumarvertíðina á þessum árum á Berg en yfir vetrarmánuðina var hún á Fróða GK sem gerður var út frá Suðurnesjum eða allt til ársins 1958.

Frá árinu 1958 og til ársins 1965 stundaði Steingerður sjómennsku á hinum ýmsu skipum. En á árunum 1965 og 1966 vann hún sem þerna og matsveinn á M/s Jarlinum sem var flutningaskip auk þess sem sambýlismaður hennar til margra ára, Ásgeir Þórarinsson, var stýrimaður á Jarlinum. Frá árinu 1967 til 1974 var Steingerður á flutningaskipinu Suðra sem gert var út frá Grindavík. Á þeim árum sem hún var á flutningaskipunum ferðaðist hún víða og upplifði margt.

Lína 146: Lína 146:
'''F. 7. maí 1924 - D. 30. maí 2005'''
[[Mynd:Marteinn Guðjónsson sj.blað.png|200px|thumb|Marteinn Guðjónsson]]

Góður félagi og vinur,[[ Marteinn Guðjónsson]], er fallinn frá nær 81 árs að aldri.

Marteinn var fæddur í Vestmannaeyjum 7. maí 1924, sonur hjónanna Guðjóns P. Valdasonar frá Steinum undir Eyjafjöllum og Guðbjargar Þorsteinsdóttur frá Rauðhálsi í Mýrdal. Alsystkini hans í aldursröð eru: Þorsteinn f. 1922. Marteinn var annar í röðinni, Þorsteina Bergrós f. 1927 og Ósk f. 1931. Hálfsystkini samfeðra: Bergur Elías f. 1913, Ragnhildur Sigríður f. 1915 og Klara f. 1916. Ósk er nú sú eina sem lifir systkinahópinn.Eftirlifandi eiginkona Marteins er [[Kristín Einarsdóttir]] f. 1923, frá Nýjabæ Vestur-Eyjafjöllum og eignuðust þau einn son, Tryggva.

Marteinn var fæddur í Vestmannaeyjum 7. maí 1924, sonur hjónanna Guðjóns P. Valdasonar frá Steinum undir Eyjafjöllum og Guðbjargar Þorsteinsdóttur frá Rauðhálsi í Mýrdal. Alsystkini hans í aldursröð eru: Þorsteinn f. 1922. Marteinn var annar í röðinni, Þorsteina Bergrós f. 1927 og Ósk f. 1931. Hálfsystkini samfeðra: [[Bergur Elías Guðjónsson|Bergur Elías]] f. 1913, Ragnhildur Sigríður f. 1915 og Klara f. 1916. Ósk er nú sú eina sem lifir systkinahópinn.Eftirlifandi eiginkona Marteins er [[Kristín Einarsdóttir]] f. 1923, frá Nýjabæ Vestur-Eyjafjöllum og eignuðust þau einn son, Tryggva.

Marteinn fór snemma að vinna. Aðeins fjórtán ára gamall fór hann að beita og í framhaldi af því fór hann til sjós. Hann var til margra ára til sjós á gömlu Kapinni með föður sínum og síðar réri hann í tvær vetrarvertíðir með [[Helgi Bergvinsson|Helga Bergvinssyni]] á Stíganda VE og var Stígandi aflahæsta skipið þau ár.

Marteinn var starfsmaður í netaverkstæði okkar um nær tveggja áratuga skeið. Hann var góður, vandvirkur og umfram allt fær netamaður og færari maður í togveiðafærum var vandfundinn. Auk þess var Marteinn góður félagi sem gott var að vera í návist við. Ekki skemmdi sameiginlegt áhugamála þorra starfsmanna Nets ehf, golfið, sem oft var aðalumræðuefnið á vinnustaðnum. Árlega var haldið sérstakt golfmót meðal starfsmanna netaverkstæðisins og þar var Marteinn heldur betur á heimavelli enda einn öflugasti félagsmaður Golfklúbbs Vestmannaeyja. Síðustu starfsárin vann hann í Íþróttamiðstððinni. Síðustu árin dvaldi Marteinn á [[Hraunbúðir|Hraunbúðum]] en þangað fór hann eftir að hafa veikst alvarlega.

Lína 153: Lína 153:
Hvíl þú í friði.

Hvíl þú í friði.

F.h. starfsmanna og eigenda Nets ehf.
F.h. starfsmanna og eigenda Nets ehf.

'''Hallgrímur Júlíusson'''

'''[[Hallgrímur Júlíusson]]'''

'''Baldvin Skæringsson'''

'''Baldvin Skæringsson'''

Lína 159: Lína 159:
[[Baldvin Skæringsson|Baldvin]] var fæddur að Rauðafelli undir Austur-Eyjafjöllum 30. ágúst 1915. Foreldrar hans voru Skæringur Sigurðsson og Kristín Ámundadóttir. Þau hjón eignuðust 14 börn, og náðu 11 þeirra fullorðinsaldri. Mörg barna þeirra dvöldu í Vestmannaeyjum til lengri eða skemmri tíma og sum settust þar að til frambúðar. Þau sem festu rætur í Eyjum voru auk Baldvins, tvíburabróðir hans, [[Georg Skæringsson|Georg]] frá [[Vegberg|Vegbergi]], en frá þeim bræðrum er fjöldi Eyjamanna kominn. Einar, bróðir þeirra, bjó einnig lengi í Eyjum, kenndur við [[Baldurshagi|Baldurshaga]].

Baldvin var að nokkru alinn upp á Drangshlíð undir Austur- Eyjafjöllum en fór víða um sveitir á barns- og unglingsaldri ráðinn sem gegningadrengur. Hann kynntist fyrst sjómennsku á árabátum, sem reru út frá Jökulsá á Sólheimasandi en þá var Baldvin barn að aldri, 11-12 ára gamall.

En fyrirheitna landið blasti við úti við sjóndeildarhring, Vestmannaeyjar, og þangað streymdi fólk að úr nærliggjandi sveitum á vertíð. Baldvin slóst fyrst í þann hóp 14 ára gamall, árið 1929 og vann í aðgerð hjá útgerð Tjalds VE 225 en einn eigandi þeirrar útgerðar var [[Halldór Jón Einarsson]] sem kvæntur var Elínu, föðursystur Baldvins. Þótt eftirköst þessarar vertíðar væru lungnabólga og brjósthimnubólga, sem kostuðu Baldvin nær lífið, mætti hann aftur til Eyja 1930 og þar með var lífshlaupið næsta ráðið. Hann réði sig í aðgerð hjá [[Kaupfélagið Fram|Kaupfélaginu Fram]] en gerðist svo beitningarmaður á Frigg VE 316, sem þá var nýkomin frá Danmörku. Næsta vetur réði Baldvin sig síðan í fyrsta skipti á sjó hjá Sigga í Hlaðbæ á Frigg og var hann þá á 17. ári. Frigg byrjaði á línu og fór síðan á net eins og þá tíðkaðist.
En fyrirheitna landið blasti við úti við sjóndeildarhring, Vestmannaeyjar, og þangað streymdi fólk að úr nærliggjandi sveitum á vertíð. Baldvin slóst fyrst í þann hóp 14 ára gamall, árið 1929 og vann í aðgerð hjá útgerð Tjalds VE 225 en einn eigandi þeirrar útgerðar var [[Halldór Jón Einarsson]] sem kvæntur var Elínu, föðursystur Baldvins. Þótt eftirköst þessarar vertíðar væru lungnabólga og brjósthimnubólga, sem kostuðu Baldvin nær lífið, mætti hann aftur til Eyja 1930 og þar með var lífshlaupið næsta ráðið. Hann réði sig í aðgerð hjá [[Kaupfélagið Fram|Kaupfélaginu Fram]] en gerðist svo beitningarmaður á Frigg VE 316, sem þá var nýkomin frá Danmörku. Næsta vetur réði Baldvin sig síðan í fyrsta skipti á sjó hjá [[Sigurður Gísli Bjarnason|Sigga í Hlaðbæ]] á Frigg og var hann þá á 17. ári. Frigg byrjaði á línu og fór síðan á net eins og þá tíðkaðist.
Næstu árin stundaði Baldvin sjómennsku á ýmsum bátum, hann var t.a.m.á Ágústu sumarið 1932, sem gerð var út á síld, en skipstjóri á Ágústu var Guðjón Tómasson.

Þá reri hann hjá [[Sigurður Auðunsson|Sigga Auðuns]] á Atlantis VE 222, sem var í eigu Árna Sigfússonar en síðan á Höfrungi VE 238, sem var í eigu Jóns Einarssonar, Fjalla. Þórarinn á Jaðri var skipstjóri á Höfrungi. Tvær næstu vertíðir var Baldvin á Ófeigi VE 217 en eigendur voru Jón á Hólmi o.fl. Sigurður Sigurjónsson var skipstjóri. Á sumrin var Baldvin á síld, annars vegar á Frigg VE 316 og Lagarfossi VE 292 og hins vegar á Frigg og Óðni VE 317 en þessir bátar voru svokallaðir tvílembingar, þ.e. tveir bátar með sömu nótina.

3.704

breytingar

Leiðsagnarval