Katrín Sigurðardóttir (Bolungarvík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Sigurðardóttir húsfreyja í Bolungarvík fæddist 30. desember 1895 á Ljótarstöðum í Skaftártungu og lést 21. ágúst 1975.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi, f. 19. október 1848 á Ljótarstöðum, d. 5. febrúar 1905 þar, og kona hans Þórunn Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1853 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 15. janúar 1938 í Skammadal þar.

Börn Sigurðar og Þórunnar:
1. Eiríkur Hjálmar Sigurðsson trésmiður í Reykjavík og Winnipeg, f. 1. júlí 1875 á Ljótarstöðum, d. 29. júní 1953. Barnsmóðir hans var Jóhanna Sigríður Guðmundsdóttir vinnukona, f. 6. október 1870, d. 10. maí 1958.
2. Sigurður Sigurðsson, f. 4. september 1876, d. 6. september 1876.
3. Guðrún Sigurðardóttir f. 14. mars 1878, d. 1897.
4. Sigurður Sigurðsson bóndi á Ljótarstöðum og í Skammadal, f. 25. júní 1879, d. 21. maí 1932. Fyrri kona hans var Hildur Árnadóttir húsfreyja, f. 2. nóvember 1874, d. 10. maí 1915. Síðari kona Sigurðar var Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 8. maí 1882, d. 3. júní 1960.
5. Hugborg Sigurðardóttir, f. 5. apríl 1881, d. 9. apríl 1883, tvíburi við Elínu.
6. Elín Sigurðardóttir, f. 5. apríl 1881, d. 1907, tvíburi við Hugborg.
7. Þorgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Skipholti, f. 30. október 1882, d. 3. desember 1960.
8. Kristján Sigurðsson, f. 7. febrúar 1884, d. 11. febrúar 1884.
9. Kristján Sigurðsson verkamaður, skósmiður á Brattlandi og í Reykjavík, f. 24. júlí 1885, d. 25. september 1966.
10. Vilhjálmur Sigurðsson trésmiður, sjúklingur, f. 19. mars 1887, d. 5. október 1971, ókv. og barnlaus.
11. Hugborg Sigurðardóttir, f. 25. maí 1888, d. í bernsku.
12. Sigurborg Sigurðardóttir húsfreyja í Wynyard, Saskatchewan í Kanada, f. 10. desember 1889, d. 4. ágúst 1949 í Winnipeg. Maður hennar var Bæring Sigurgeirsson Hallgrímsson járnbrautarstarfsmaður, f. 26. mars 1890.
13. Magnús Kristján Sigurðsson sjómaður, fiskimatsmaður á Geirlandi í Sandgerði, f. 15. ágúst 1891, drukknaði 12. janúar 1968. Kona hans var Rósa Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1900, d. 13. nóvember 1993.
14. Katrín Sigurðardóttir vinnukona í Dölum, húsfreyja í Bolungarvík, f. 30. desember 1895, d. 21. ágúst 1975.
15. Ársæll Sigurðsson skólastjóri, f. 31. desember, f. 1901, d. 28. júní 1970.
Fóstursonur Þórunnar um skeið:
16. Sigurþór Eiríksson, f. 19. ágúst 1908, d. 26. nóvember 1980. Hann var sonur Eiríks Hjálmars Sigurðssonar. Hann var fluttur til Eyja 1915, farinn 1924.

Systkini Þórunnar móður Katrínar í Eyjum voru:
1. Þorgerður Þórdís Hjálmarsdóttir húsfreyja í Dölum, f. 4. júní 1855 á Ketilsstöðum, d. 2. mars 1939 í Eyjum.
2. Eiríkur Hjálmarsson kennari á Vegamótum, f. 11. ágúst 1856 á Ketilsstöðum, d. 5. apríl 1931 í Eyjum.

Hálfsystkini Þórunnar í Eyjum, samfeðra, voru:
3. Hjálmrún Hjálmarsdóttir vinnukona, síðar ráðskona í Reykjavík, f. 16. mars 1878, d. 9. mars 1950.
4. Guðrún Hjálmarsdóttir húsfreyja á Akri, f. 12. apríl 1879 á Efri-Rotum, d. 23. september 1928.
5. Helgi Hjálmarsson, – að Hamri, f. 13. október 1880 á Efri-Rotum, d. 6. apríl 1876.
6. Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja í Oddhól, f. 6. september 1884 á Efri-Rotum, d. 15. ágúst 1937.

Katrín var með foreldrum sínum á Ljótarstöðum í frumbernsku, missti föður sinn 10 ´ra gömul. Hún var með móður sinni þar 1905-1907.
Hún var tökubarn á Borgarfelli í Skaftártungu 1907-1909.
Katrín fluttist til Eyja með móður sinni, Þorgerði og Ársæli systkinum sínum 1909, var vinnukona í Dölum 1909-1911, á Akri 1912-1916.
Katrín fluttist til Bolungarvíkur 1918, bjó í húsi G. Þorgilssonar í Hólshreppi í N-Ísafjarðarsýslu 1920, ,,tilvon. tengdadóttir hj.“
Þau Þorgils bjuggu í Bolungarvík og eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra tveggja ára.
Katrín lést 1970 og Þorgils 1985.

I. Maður Katrínar var Þorgils Guðmundsson sjómaður, f. 7. apríl 1898 á Grundum í Bolungarvík, d. 6. febrúar 1985.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Janus Þorgilsson, f. 5. ágúst 1922, d. 5. september 1924.
2. Kristján Þorgilsson vélstjóri í Bolungarvík, síðast á Akranesi, f. 8. mars 1924, d. 13. nóvember 1989. Kona hans var Sæunn Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja, síðast í Reykjavík, f. 25. nóvember 1925, d. 29. apríl 2006.
3. Margrét Þorgilsdóttir húsfreyja í Bolungarvík, f. 12. apríl 1925, d. 14. apríl 2003. Maður hennar var Þorkell Erlendur Jónsson bifreiðastjóri í Bolungarvík, f. 8. júlí 1917, d. 15. nóvember 1976.
4. Sigurþór Þorgilsson kennari, atvinnurekandi í Reykjavík, f. 30. mars 1928, d. 8. ágúst 2015. Kona hans var Jónína Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 23. maí 1930.
5. Elín Þorgilsdóttir húsfreyja, f. 24. janúar 1932, síðast í Kópavogi, d. 26. apríl 1999. Maður hennar var sr. Þorbergur Kristjánsson, f. 4. apríl 1925, d. 28. september 1996.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.