Katrín Oddsdóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Katrín Oddsdóttir vinnukona fæddist 1775 og mun hafa dáið í nóvember 1827, jarðsett 25. nóvember á því ári.
Uppruni hennar er ókunnur.

Katrín var 26 ára vinnukona á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1801.
Hún var vinnukona í Kornhól við fæðingu Magnúsar 1811, á Vilborgarstöðum 1816, á Miðhúsum 1822 og 1823, í Gerði 1824, „tökukerling“ á Ofanleiti 1826, á Gjábakka við andlát 1827.

Barnsfaðir Katrínar var Oddur Ögmundsson, þá vinnumaður í Kornhól, f. 1787, d. 27. janúar 1837.
Barn þeirra var
1. Magnús Oddsson, f. 19. apríl 1811, d. 24. apríl 1811 úr „Barnaveikindum“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.