John Good Robert Charles Hansen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

John Good Robert Charles Hansen fæddist 1804 í Kaupmannahöfn og lést 28. október 1836.
Foreldrar hans voru Hans Christian Hansen bókhaldari í Kaupmannahöfn, f. 1777, og Charlotte Amalie Stauning, f. 1781.

Hann kom til Eyja frá Reykjavík með Þórönnu konuefni sitt 1826 og var verslunarmaður í Kornhól. Þau Þóranna giftust 1827, þá búandi á Vesturhúsum. Þau eignuðust andvana barn þar 1828.
Þau bjuggu í Tómthúsi 1832 og 1833.
Hjónin fluttust til Keflavíkur og þar var John verslunarstjóri hjá Andr. og Smidt 1835, fékk borgararéttindi 5. desember 1835.
Hann lést 29. október 1836 í Reykjavík.

Kona hans, (26. júní 1827), var Þóranna Kristjana Hallsdóttir húsfreyja, f. 1801, d. 5. febrúar 1874.
Barn þeirra var
1. Andvana fætt stúlkubarn 22. október 1828.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.