Jens Christian Thorvald Abel

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Jens Christian Dorval Abel)
Fara í flakk Fara í leit

Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður í Godthaabverzlun, - skrifað Jens Christjan Dorval í prestþj.bók, nefndur Thorvald Abel í Eyjum -, fæddist 24. maí 1823 á Vesturhúsum og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hans voru Johan Nicolai Abel sýslumaður, f. 31. mars 1794 í Kværkeby í Ringsted í Sorö, d. 31. október 1862 í Kaupmannahöfn, og kona hans Diderikke Claudine Abel húsfreyja, f. 3. febrúar 1792 í Kaupmannahöfn, d. 18. febrúar 1855 í Hilleröd.

Börn Diderikke og Johans Abels í Eyjum voru:
1. Jensine Marie Andrea Abel húsfreyja, f. um 1821 líklega í Danmörku.
2. Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður, f. 24. maí 1823 á Vesturhúsum.
3. Hans Schack Abel, f. 19. mars 1825 á Vesturhúsum, d. 24. mars 1825 úr „Barnaveiki“.
4. Carolina Augusta Abel, f. 10. mars 1834 í Kornhól.
Fósturbarn þeirra var
5. Jóhanna Sigríður Margrét Bjarnasen, f. 22. júní 1839, d. 4. apríl 1910. Móðir hennar lést, er hún var á 3. árinu og faðir hennar 1845. Jóhanna var hjá sýslumannshjónunum í Eyjum í 1-2 ár, en fór þá til Reykjavíkur og þaðan til Kaupmannahafnar.

Thorvald ólst upp í Eyjum. Hann var höndlunarþjónn í Godthaab 1844, keypti verslunina ásamt mági sínum Jens Thomsen Christensen 10. júní 1847. Kaupverðið var 13.000 ríkisbankadalir í silfri, en þeir höfðu greitt kaupverðið að fullu árið 1855.
Verslunina ráku þeir til ársins 1858, en 26. júní á því ári seldu þeir félagar hana Hans Edvard Thomsen.
Þau Jóhanna eignuðust 5 börn, en misstu elsta barnið á öðru ári.
Þegar Jóhann Bjarnasen verslunarstjóri lést 1845, tóku þau Jóhanna í fóstur yngsta barn hans og Sigríðar systur Jóhönnu, Augustu Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841. Hún fylgdi þeim úr landi.
Fjölskyldan bjó í Godthaab, en við fæðingu yngsta barnsins 1859 bjuggu þau í Stakkagerði. Við sóknarmannatal 1859 voru þau hinsvegar búsett í Garðinum og þaðan fluttust þau úr landi 1860.

Kona Thorvalds Abels, (30. ágúst 1844), var Jóhanna Jónsdóttir Abel húsfreyja, f. 4. júní 1819.
Börn þeirra hér:
1. Dideriche Johanne Sigríður Abel, f. 4. september 1844 í Godthaab, d. 29. júlí 1846 „af Barnaveikin og umgangsveiki“. (Fæðingar hennar er aðeins getið í karlaskrá prestþjónustubókar).
2. Johan Christopher, f. 19. júlí 1846, d. 28. júlí 1846 úr ginklofa.
3. Johan Jes Abel, f. 17. september 1848 í Godthaab.
4. Didrikke Jensine Augusta, f. 13 janúar 1851 í Godthaab.
5. Jóhanna Björg Þóra Sigríður Abel, f. 10. febrúar 1856 í Godthaab.
6. Jonine Ragnheiður Kristine Abel, f. 23. febrúar 1859 í Stakkagerði.
Fósturdóttir þeirra var
7. Augusta Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.