Jórunn Bjarnadóttir (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jórunn Bjarnadóttir bústýra fæddist 9. janúar 1864 og lést 7. maí 1945.

Faðir hennar var Bjarni bóndi í Ásólfsskála u. Eyjafjöllum 1870, f. 1. desember 1830, d. 11. júlí 1900, Jónsson bónda á Refsstöðum í Landbroti og Syðri-Steinsmýri í Meðallandi, f. 24. apríl 1797, d. 13. október 1839, Bjarnasonar bónda víða, en síðast og lengst í Mörk á Síðu, f. 1742 á Núpstað í Fljótshverfi, d. 10. september 1820, Jónssonar, og síðari konu Bjarna í Mörk, Bóelar húsfreyju, f. 1770, d. 22. september 1834, Jónsdóttur prests Brynjólfssonar.
Móðir Bjarna á Ásólfsskála og kona Jóns á Refsstöðum, (28. maí 1822), var Guðný húsfreyja, f. 17. október 1799, Árnadóttir bónda á Syðri-Steinsmýri, f. 1765 á Syðri-Fljótum í Meðallandi, d. 19. ágúst 1846 á Syðri-Steinsmýri, Halldórssonar, og konu Árna á Syðri-Steinsmýri, (1796), Elínar húsfreyju, f. 1776, d. 4. júlí 1846 á Syðri-Steinsmýri, Jónsdóttur.

Móðir Jórunnar í Hruna og kona Bjarna Jónssonar í Ásólfsskála var Guðrún húsfreyja, f. 30. apríl 1843, d. 9. nóvember 1901, Arnoddsdóttir bónda, lengst í Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum, f. 18. september 1796 í Drangshlíð þar, d. 29. mars 1883 í Seli í Landeyjum, Brandssonar bónda í Drangshlíð, f. 1743, d. 6. maí 1822, Einarssonar, og konu Brands, Margrétar húsfreyju, f. 1766, d. 19. febrúar 1853, Arnoddsdóttur.
Móðir Guðrúnar í Ásólfsskála og síðari kona, (14. júlí 1842), Arnodds Brandssonar var Jórunn húsfreyja í Hrútafellskoti, f. 1808 í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, Jónsdóttir bónda þar 1816, f. 1760, Jónssonar, og konu hans, Guðbjargar húsfreyju, f. 1770, d. 12. desember 1847, Jónsdóttur.

Börn Bjarna Jónssonar og Guðrúnar Arnoddsdóttur í Eyjum voru:
1. Jórunn Bjarnadóttir bústýra í Hruna, f. 9. janúar 1864 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, d. 7. maí 1945.
2. Elín Bjarnadóttir húsfreyja í Sigtúni, f. 20. nóvember 1865 í Klömbru u. Eyjafjöllum, d. 18. nóvember 1948.
3. Margrét Bjarnadóttir húsfreyja á Múla, f. 10. desember 1869, d. 2. október 1950.
4. Jóhanna Bjarnadóttir húsfreyja á Brimbergi, f. 16. mars 1874, d. 5. mars 1957.
5. Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja á Strönd, f. 13. janúar 1879, d. 17. nóvember 1954.
6. Jón Bjarnason verkamaður í Sigtúni, f. 2. maí 1881, d. 28. nóvember 1963.
7. Bjarni Bjarnason útvegsbóndi, sjómaður á Hoffelli, f. 18. maí 1885, fórst 16. desember 1924.
Móðursystir barnanna, systir Guðrúnar Anoddsdóttur, var Gróa Arnoddsdóttir móðir
8. Önnu Tómasdóttur húsfreyju í Selkoti, móður
a. Hjörleifs Sveinssonar í Skálholti,
b. Tómasar Sveinssonar á Faxastíg 15 og
c. Sigfúsar Sveinssonar á Kirkjubæjarbraut 8.

Jórunn var með foreldrum sínum í Ásólfsskála í æsku, var vinnukona í Gularáshjáleigu í A-Landeyjum 1880, vinnukona hjá Gróu móðusystur sinni í Selkoti u. Eyjafjöllum 1890.
Hún fluttist frá Lágafelli til Eyja 1900, var vinnukona í Ólafshúsum 1901, vinnukona í Gvendarhúsi 1906, lausakona í Sjóbúð 1907.
Jórunn var bústýra hjá Sigurði Jónssyni í Hruna 1908, en þar var Bjarni bróðir hennar til húsa. Hún var bústýra Bjarna þar 1909 og 1910. Þar var hún bústýra hjá Bjarna 1911, en þá var þar vinnukona Jónína Sigurðardóttir 19 ára.
Jórunn var skráð bústýra hjá Bjarna í Hruna 1912, en Jónína var kona hans.
Hún var leigjandi á Sólheimum 1913 og 1914, leigjandi í Mandal 1915, vinnukona þar 1916-1919, bústýra þar 1920, vinnukona þar 1923, ráðskona 1930, bústýra 1934, gamalmenni hjá Jóni Stefánssyni þar 1940.
Jórunn lést 1945 ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.