Jón Gíslason (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Gíslason frá Presthúsum fæddist 23. nóvember 1848, d. 17. nóvember 1924 í Varden í Grimstad í Austur-Ögðum í Noregi.
Foreldrar hans voru Gísli Jónsson bóndi, lóðs og hreppstjóri í Presthúsum, f. 11. apríl 1803, d. 28. ágúst 1861 og síðari kona hans Guðrún Valtýsdóttir húsfreyja, f. 1806, d. 6. júní 1866.

1. Systir Jóns var Kristbjörg Gísladóttir, síðar húsfreyja á Seyðisfirði.
Hálfsystir Jóns, sammædd, var
2. Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 10. febrúar 1833, d. 30. ágúst 1906, kona Ísaks Jakobs Jónssonar bónda.

Jón var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hans lést af slysförum í Stórhöfða 1861, er Jón var á 13. árinu.
Hann var með móður sinni í Presthúsum í lok árs 1861 og 1862, léttadrengur í Túni 1863 og enn 1865, vinnumaður þar 1866-1867, vinnumaður í London 1868 og enn 1870, en fór til Kaupmannahafnar frá London á því ári, bjó í Noregi.
Jón var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.