Jón Einarsson eldri (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Einarsson eldri, bóndi á Gjábakka 1828-1838, fæddist 1789 í Ártúnum á Rangárvöllum og lést 21. mars 1838 á Gjábakka.
Faðir hans var Einar bóndi í Litla-Gerði í Hvolhreppi, f. 1765, d. 3. janúar 1851 í Eyjum, Ormsson bónda á LitlaMoshvoli, f. 1710, d. 9. apríl 1786, Jónssonar, og konu Orms, Geirlaugar húsfreyju, f. 1722, d. 3. janúar 1808, Einarsdóttur.
Móðir Jóns eldri á Gjábakka og kona Einars Ormssonar var Ásdís húsfreyja, skírð 21. janúar 1753, d. 13. febrúar 1828, Þorgilsdóttir bónda í Ártúnum, f. 1706, d. í desember 1759, Markússonar bónda í Litla-Gerði, f. 1656, Þorgilssonar, og konu Markúsar, Helgu húsfreyju, f. 1663, Sigurðardóttur.
Móðir Ádísar Þorgilsdóttur og kona Þorgils var Neríður húsfreyja, f. 1713, d. 28. mars 1784 í Ártúnum, Snjólfsdóttir bónda og hreppstjóra á Brekkum á Rangárvöllum, f. 1675, d. í október 1744, Guðbrandssonar, og konu Snjólfs, Guðrúnar húsfreyju, f. 1680, á lífi 1729, Kolbeinsdóttur.

Jón Einarsson bjó með Margréti konu sinni í Rimakoti í A-Landeyjum 1820-1828, fluttist þá til Eyja og bjó á Gjábakka frá 1828. Hann lést 1838.

I. Kona Jóns Einarssonar, (25. desember 1819), var Margrét Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1795 á Önundarstöðum í A-Landeyjum, skírð 25. september þ.á., d. 23. febrúar 1836 á Gjábakka.
Börn Jóns og Margrétar hér:
1. Grímur Jónsson vinnumaður á Gjábakka, f. 25. ágúst 1818, drukknaði 21. febrúar 1842, ókvæntur.
2. Vigfús Jónsson, f. 27. júní 1820, d. 1. júlí þ.á.
3. Kristín Jónsdóttir bústýra í Hólshúsi 1860 hjá bróður sínum Vigfúsi Jónssyni ekkli. Hún var á sveit í Vanangri 1890, f. 12. ágúst 1821, d. 27. nóvember 1894, ógift.
4. Vigfús Jónsson tómthúsmaður í Hólshúsi, f. 6. október 1822, d. í apríl 1867. Hann var fyrr kvæntur Margréti Skúladóttur, síðar Nikólínu Ottadóttur.
5. Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Túni, f. 6. apríl 1825, d. 25. desember 1865, gift Jóni Sverrissyni húsmanni, f. 1833, d. 10. maí 1859.
6. Hildur Jónsdóttir, f. 21. maí 1826, d. 30. s.m.
7. Ásdís Jónsdóttir, f. 28. september 1827, d. 11. nóvember s.á.
Börn fædd í Eyjum:
8. Daníel Jónsson, f. 15. febrúar 1829, d. 22. s. mán. úr ginklofa
9. Jón Jónsson, f. 2. mars 1831, d. 9. s.m. úr ginklofa.
10. Daníel Jónsson, f. 2. maí 1832, d. 8. s.m. úr ginklofa.
11. Þuríður Jónsdóttir, tvíburi, f. 20. maí 1834, d. 26. maí 1834 úr „Barnaveikindum“.
12. Ásdís Jónsdóttir, tvíburi, f. 20. maí 1834, d. 26. maí 1834 úr „Barnaveikindum“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.