Jón Ólafsson (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ólafsson frá Vestri-Torfastöðum, sjómaður, verkamaður í Eyjum og Reykjavík fæddist 1. apríl 1910 og lést 7. nóvember 1937.
Foreldrar hans voru Ólafur Sigurðsson bóndi, f. 24. febrúar 1865, d. 30. janúar 1946 og kona hans Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja, f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.

Börn Aðalheiðar og Ólafs í Eyjum:
1. Jóhanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 26. júlí 1895, d. 27. júlí 1984, kona Guðmundar Jónssonar skósmiðs.
2.Guðrún Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1897, d. 2. janúar 1957, kona Carls Gränz málara- og trésmíðameistara.
3. Aðalheiður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 5. nóvember 1901, d. 28. desember 1990, kona Guðna Ólafssonar.
4. Óskar Ólafsson frá Hólnum við Landagötu, pípulagningamaður, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, maður Kristínar Jónsdóttur.
5. Jón Ólafsson sjómaður, verkamaður, síðar í Reykjavík, f. 1. apríl 1910, d. 7. nóvember 1937.
6. Ingólfur Ólafsson sjómaður, síðast í Görðum, f. 23. janúar 1914, d. 12. janúar 1941.
7. Guðmunda Ólafsdóttir vinnukona á Karlsbergi 1930, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 10. maí 1916, d. 17. júlí 1994.
8. Kjartan Ólafsson kennari, f. 3. ágúst 1917, d. 13. desember 1969. Kona hans var Sigríður Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja.

Jón var með foreldrum sínum í æsku, á Vestri-Torfaströðum 1910 og 1920 og fluttist með þeim til Eyja 1925.
Hann var verkamaður og sjómaður og bjó hjá foreldrum sínum á Hólnum 1930, bjó síðar í Reykjavík og var búsettur þar, er hann lést í Eyjum 1937, ókv. og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.