Jón Ásgrímsson (Fagurlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Ásgrímsson tómthúsmaður í Fagurlyst fæddist 25. október 1829 í Efri-Mörk á Síðu og lést 11. júní 1866.
Faðir hans var Ásgrímur bóndi í Efri-Mörk á Síðu, f. 11. mars 1801 í Hólmi í Landbroti, d. 29. júlí 1834 í Efri-Mörk, Einarsson bónda á Efri-Heiði á Síðu, f. í Kálfafellskoti í Fljótshverfi, skírður 5. september 1770, d. 4. október 1825, Pálssonar bónda, síðast í Holti á Síðu, f. 1721, d. um 1780, Arnbjarnarsonar, og konu Páls í Holti, (1758), Rannveigar húsfreyju, f. 1733, Sigurðardóttur.
Móðir Ásgríms í Efri-Mörk og kona Einars Pálssonar var Ólöf húsfreyja, f. 7. október 1767, d. 17. maí 1839 á Fossi á Síðu, Pálsdóttir bónda á Hunkubökkum á Síðu, f. 1730, d. 1789, Ólafssonar, og konu Páls Ólafssonar, Margrétar húsfreyju, f. 1732, d. 1802, Ingimundardóttur.
Móðir Jóns Ásgrímssonar og kona, (26. júlí 1824), Ásgríms í Efri-Mörk var Ragnhildur húsfreyja, f. 11. mars 1799 í Holti á Síðu, d. 22. júlí 1843 í Prestsbakkakoti þar, Jónsdóttir bónda í Holti, f. 1763 í Kálfafellskoti, d. 16. júlí 1832 í Holti, Pálssonar bónda, síðast í Holti á Síðu, f. 1721, d. um 1780, Arnbjarnarsonar, og konu Páls í Holti, (1758), Rannveigar húsfreyju, f. 1733, Sigurðardóttur.
Móðir Ragnhildar í Holti og kona Jóns Pálssonar, (17. maí 1789), var Ragnhildar húsfreyju, f. 1759, d. 3. desember 1836 í Holti, Jónsdóttir.
Hjónin, foreldrar Jóns Ásgrímssonar, voru bræðrabörn.

Jón var bróðir Einars Ásgrímssonar vinnumanns á Ofanleiti.

Jón var 6 ára með ekkjunni móður sinni í Mörk á Síðu 1835, tökubarn á Brattlandi (Ytri-Dal) þar 1840, vinnudrengur þar 1845, ókvæntur vinnumaður á Fossi í Kirkjubæjarklausturssókn 1850, líklega sá, sem er ókvæntur vinnumaður í Gúlarási í A-Landeyjum 1855.
Hann er kominn að Fagurlyst í Eyjum 1860 og er þar fyrirvinna ekkjunnar og húsfreyjunnar Hólmfríðar Guðmundsdóttur og faðir Friðsteins Guðmundar tveggja ára.
Jón deyr 11. júní 1866.

Kona Jóns Ásgrímssonar var Hólmfríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Fagurlyst, f. 1828, d. 6. júlí 1866. Jón var síðari maður hennar.
Börn Jóns og Hólmfríðar voru:
1. Friðsteinn Guðmundur Jónsson stýrimaður á þilskipi, f. 27. ágúst 1859, d. 29. febrúar 1904.
2. Andvana sveinbarn, f. 28. júní 1866.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Magnús Bjarnason.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.