Jónína Ástgeirsdóttir (Litlabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jónína Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, húsfreyja á Bergi fæddist 4. júlí 1884 í V-Landeyjum og lést 8. mars 1917.
Foreldrar hennar voru Ástgeir Guðmundsson bátasmiður í Litlabæ, f. 27. október 1858 á Bryggjum í A-Landeyjum, d. 30. september 1943, og kona hans Kristín Magnúsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1859 að Skíðbakka í A-Landeyjum, d. 13. júlí 1938.

Börn Kristínar og Ástgeirs hér:
1. Jónína Ástgeirsdóttir húsfreyja á Bergi, f. 4. júlí 1884 í V-Landeyjum, d. 8. mars 1917.
2. Magnús Ástgeirsson sjómaður, f. 27. apríl 1887, fórst af mb. Sæborgu VE-124 á Þykkvabæjarfjöru 9. október 1909, ókvæntur.
3. Guðmundur Ástgeirsson sjómaður, f. 22. maí 1889, d. 26. ágúst 1970, kvæntur Jóhönnu Sigríði Jónsdóttur húsfreyju, f. 24. júní 1889, d. 4. apríl 1977.
4. Guðrún Ástgeirsdóttir húsfreyja, fyrri kona Einars Sæmundssonar húsasmíðameistara, síðar á Staðarfelli. Hún var fædd 5. ágúst 1890 og lést 28. nóvember 1915.
5. Ólafur Ástgeirsson bátasmiður, f. 3. ágúst 1892, d. 8. apríl 1966, kvæntur fyrr Kristínu Jónsdóttur húsfreyju, f. 19. apríl 1885 að Varmahlíð u. Eyjafjöllum, d. 17. september 1943.
Síðari kona Ólafs var Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 9. september 1920, d. 19. apríl 1993.
6. Kristinn Ástgeirsson listmálari á Miðhúsum, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981, kvæntur Jensínu Maríu Matthíasdóttur frá Færeyjum, húsfreyju, f. 16. febrúar 1892 í Kvívík í Færeyjum, d. 28. maí 1947.
7. Valdimar Ástgeirsson málari, leikari, f. 19. september 1898, d. 26. júlí 1978. Kona hans var Þórodda Vigdís Loftsdóttir húsfreyja, f. 12. ágúst 1905, d. 29. júlí 1986.
7. Kristín Ástgeirsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1900, d. 19. janúar 1991, var gift Engilbert Guðmundssyni trésmið. Hann fæddist 4. ágúst 1899 og lést á Vífilsstöðum 2. desember 1945.

Jónína var með foreldrum sínum til ársins 1908, en þá hóf hún búsksp á Bergi með Sigurjóni. Jónína fæddi andvana barn þeirra 1909.
Sigurjón fórst með m.b. Sæborgu á Þykkvabæjarfjöru 9. október 1909. Með honum fórst Magnús Ástgeirsson bróðir Jónínu.
Hún giftist Þórði Jónssyni 1910. Þau bjuggu á Bergi, eignuðust andvana stúlku 1916.
Jónína lést 1917.

I. Sambýlismaður Jónínu var Sigurjón Jónsson sjómaður, f. 2. desember 1880, drukknaði 9. október 1909.
Börn þeirra voru:
1. Ástrós Þórunn Sigurjónsdóttir, f. 3. október 1907, d. 5. janúar 1908.
2. Andvana sveinbarn f. 3. júlí 1909.

II. Síðari maður hennar, (23. desember 1910), var Þórður Jónsson skipstjóri, skipasmiður frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
Barn þeirra var
3. Andvana stúlkubarn, f. 19. ágúst 1916.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.