Jóhanna Viktoría Þorsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Viktoría Þorsteinsdóttir frá Norðtungu í Borgarfirði, húsfreyja á Brimnesi og víðar fæddist 19. febrúar 1896, d. 30. desember 1969.
Foreldrar hennar voru Margrét Guðmundsdóttir vinnukona frá Sólmundarhöfða á Akranesi, f. 14. desember 1870, varð úti á Fjarðarheiði upp af Seyðisfirði 26. janúar 1897, og barnsfaðir hennar Þorsteinn Maríus Pálsson sjómaður, f. 27. janúar 1873 í Garðasókn á Akranesi, d. 20. apríl 1950.

Jóhanna Viktoría kom til Eyja 12 ára með Sigríði Ólafsdóttur, börnum hennar og föður 1908 og var í hennar umsjá á Lágafelli. Hún var titluð vikastúlka hjá henni á Lágafelli, vinnukona hjá henni á Löndum 1910 og enn 1914, var í Húsavík með fjölskyldu Guðmundar 1916 með barnið Hermann Karl nýfæddan. Þau Guðmundur bjuggu í Merkisteini 1919, á Brimnesi 1920-1922, í Nýhöfn 1923-1929, er þau fluttust til Reykjavíkur, þar sem Guðmundur stundaði daglaunavinnu, en síðar kaupmennsku.
Guðmundur lést 1966 og Jóhanna Viktoría 1969.

I. Maður Jóhönnu Viktoríu, (3. júní 1917), var Guðmundur Auðunsson vélstjóri, síðar kaupmaður í Reykjavík, f. 31. júlí 1896, d. 18. maí 1966.
Börn þeirra hér:
1. Hermann Karl Guðmundsson pípulagningamaður, f. 21. febrúar 1916 í Húsavík, d. 16. september 1991.
2. Herold Friðgeir Guðmundsson, f. 2. maí 1918 í Húsavík, d. 17. ágúst 1990. Hann bjó síðast í Danmörku.
3. Auðunn Gunnar Guðmundsson, f. 24. nóvember 1919 í Merkisteini, d. 5. október 1980. Hann bjó síðast í Reykjavík.
4. Katrín Svala Guðmundsdóttir, f. 23. desember 1920 á Brimnesi, d. 9. febrúar 1974. Hún bjó síðast í Reykjavík.
5. Hanna Ólöf Guðmundsdóttir, f. 12. apríl 1923 í Nýhöfn, d. 12. júní 2008.
6. Kristín Guðmundsdóttir, f. 3. nóvember 1925 í Nýhöfn.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blaðið Heimskringla 11. mars 1897.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.