Jóhanna Jónsdóttir (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Jónsdóttir Austmann frá Þorlaugargerði húsfreyja í Reykjavík, forstöðukona í Kaupmannahöfn fæddist 29. desember 1847 í Fredensbolig, d. 27. apríl 1910.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson Austmann, síðar bóndi í Þorlaugargerði, f. 12. apríl 1814 í Holti í Mýrdal, d. 15. mars 1888 í Þorlaugargerði, og kona hans Rósa Hjartardóttir húsfreyja, f. 1822 í Grindavík, d. 14. janúar 1902 í Reykjavík.

Jóhanna ólst upp með foreldrum sínum í Fredensbolig, sem einnig var nefnt Sorgenfri, var með þeim í Götu 1854, á Oddsstöðum 1855, í Brekkuhúsi 1856, í Þorlaugargerði frá 1857.
Hún var vinnukona á Ofanleiti 1870.
Hún fluttist frá Ofanleiti að Læknisstöðum á Seltjarnarnesi (Nesi við Seltjörn) 1871.
Hún fluttist til Danmerkur og giftist Andreas Frederiksen 1874, líklega í Danmörku, og eignaðist með honum 3 börn þar. Fjölskyldan bjó í Holbæk 1880 og fluttist til Reykjavíkur á því ári. Páll Hjörtur Bjarni fæddist í Reykjavík. Þau bjuggu í Húsi Þorvalds Klængssonar í Reykjavík með 3 börn sín 1880, bjuggu í Fischersundi 3 með 4 börn 1890.
Þau voru enn í Fischersundi 3 1901 með Inger Marie og Rósu móður Jóhönnu, en önnur börn þeirra voru ekki skráð á manntali ársins, sennilega í Danmörku.
Andreas lést 1902. Jóhanna flutti til Danmerkur, var þar forstöðukona.

Maður Jóhönnu, (13. desember 1874), var Andreas Frederiksen bakarameistari í Reykjavík, f. 21. mars 1843, d. 29. nóvember 1902.
Börn þeirra hér:
1. Inger Marie Jensine Frederiksen forstöðukona barnahælis í Danmörku, f. 19. janúar 1875 í Danmörku. Barnsfaðir hennar Lauritz Constantin Jörgensen málarameistari í San Francisko og í Reykjavík.
2. Janine Pauline Rosalie Jörgensen, f. Frederiksen, f. 4. júlí 1877 í Danmörku, d. 19. nóvember 1956. Maður hennar Lauritz Constantin Jörgensen málarameistari í San Francisko og í Reykjavík.
3. Jens Vilhelm Johan Edvard Frederiksen bakarameistari, verslunarmaður, f. 31. júli 1879 í Danmörku, d. 18. september 1954. Kona hans (skildu), var Guðrún S. Þorgrímsdóttir húsfreyja, síðar fyrri kona Brynjúlfs Sigfússonar. Hún var f. 28. maí 1882, d. 22. september 1927.
4. Páll Hjörtur Bjarni Friðriksson trésmiður í Reykjavík, f. 9. ágúst 1884 í Reykjavík, d. 8. júlí 1915. Fyrri kona hans Karen Marie Larsen. Síðari kona hans Jörgina Cathrine Nilsen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.