Jónatan Brynjúlfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jónatan Brynjúlfsson.

Jónatan Brynjúlfsson frá Breiðholti, rafvirkjameistari fæddist þar 11. mars 1954 og lést 17. mars 1984.
Foreldrar hans voru Brynjúlfur Jónatansson rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924 og kona hans Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.

Börn Lilju og Brynjúlfs:
1. Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, lífeindafræðingur, sálfræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008. Maður hennar Halldór Guðbjarnason.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011. Maður hennar Smári Eyfjörð Grímsson.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, rafverktaki, f. 22. mars 1953. Kona hans Margrét Ásælsdóttir.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984. Fyrri kona hans Árný Sigríður Baldvinsdóttir, látin. Síðari kona hans Heiða TH. Kristjánsdóttir.
5. Anna Brynjúlfsdóttir móttökuritari, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson kvikmyndasýningastjóri, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958. Kona hans Edda S. Jóhannsdóttir.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 10. janúar 1960. Maður hennar Ástþór Rafn Pálsson.
Fósturdóttir hjónanna er
8. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, við framhaldsnám í Kanada, f. 20. september 1973. Hún er dóttir Jónatans Brynjúlfssonar og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyju, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.

Jónatan var með foreldrum sínum til þriggja ára aldurs, en var hjá föðurforeldrum sínum í Breiðholti fram yfir fermingu. Hann nam rafvirkjun hjá föður sínum og við Iðnskólann, lauk sveinsprófi 1977.
Jónatan vann í Neista, fluttist til Reykjavíkur og vann hjá Volta og víðar.
Þau Árný Sigríður fluttust til Eyja 1972, giftu sig þar, bjuggu á Heiðarvegi 60.
Þau fluttu til Svíþjóðar 1973, eignuðust Steinunni í september og dvöldu þar nær tvö ár. Hann vann þar í kapalverksmiðju. Til Reykjavíkur fluttu þau um 1975 og bjuggu þar síðan. Brynjúlfur fæddist þar 1977.
Árný lést 1979.
Börnin tvö fóru í fóstur, - Steinunn til föðurforeldra sinna, Lilju og Brynjúlfs, en Brynjúlfur varð kjörbarn Steinunnar föðursystur sinnar og Halldórs manns hennar.
Jónatan giftist Heiðu Theodórs Kristjánsdóttur. Þau voru barnlaus.
Jónatan lést 1984.

I. Fyrri kona Jónatans var Árný Sigríður Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 29. nóvember 1955 á Akranesi, d. 19. maí 1979. Foreldrar hennar voru Baldvin Ingi Sigurður Árnason pípulagningamaður í Reykjavík, f. 25. maí 1929 á Ísafirði og kona hans, (skildu), Guðný Soffía Valentínusdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. október 1935 í Reykjavík, d. 24. júlí 1969.
Börn þeirra:
1. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, doktorsnemi í Kanada, f. 20. september 1973 í Svíþjóð.
2. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977 í Reykjavík.

II. Síðari kona Jónatans var Heiða Theodórs Kristjánsdóttir, f. 4. mars 1956 á Brennistöðum í Flókadal, Borg. Kjörfaðir hennar var Kristján Jóhann Jónsson leikstjóri í Reykjavík, f. 8. mars 1933, og móðir hennar og kona hans var Valgerður Theodórsdóttir húsfreyja, f. 19. desember 1930 í Reykjavík, d. 24. mars 2012.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjálmar.
  • Íslendingabók.is.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.