Jón Jónsson (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson bóndi í Norðurgarði fæddist 1. mars 1791 í Breiðabólsstaðarsókn og hrapaði til bana úr Stórhöfða 21. ágúst 1851.
Faðir hans var Jón bóndi í Háakoti í Fljótshlíð 1801, á Grjótá þar 1816, í Norðurgarði hjá Jóni 1823 og 1824, f. 1750 á Gjábakka í Eyjum, d. 22. nóvember 1824, Þorkelsson.
Móðir Jóns í Norðurgarði og kona Jóns Þorkelssonar var Þorgerður húsfreyja, f. 1748 á Giljum í Hvolhreppi, d. 13. maí 1818, Jónsdóttir.

Systur Jóns í Norðurgarði voru:
1. Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja í Þorlaugargerði 1835, f. 1785 í Réttarhúsum í Fljótshlíð, d. 8. mars 1860. Maður hennar var Sigurður Sigurðsson bóndi í Þorlaugargerði 1840, 27 ára, látinn fyrir mt 1845.
2. Ingibjörg Jónsdóttir var hjá ekkjunni Sigþrúði systur sinni 1845.

Jón fluttist af landi að Gjábakka 1817. Þau Valgerður voru vinnufólk þar við fæðingu Jóns 1819, voru síðan á Löndum, en komust að Norðurgarði 1823.
Valgerður lést 1825 af barnsförum.

I. Fyrri kona Jóns, (30. október 1819), var Valgerður Jónsdóttir húsfreyja frá Vetleifsholti í Holtum, skírð 6. apríl 1788, d. 21. júlí 1825 af barnsförum.
Börn þeirra voru:
1. Jón Jónsson, f. 14. janúar 1819, d. 20. janúar 1819 „af Barnaveikindum“.
2. Jón Jónsson, f. 12. júlí 1825, d. 18. jílí 1825 úr ginklofa.

II. Síðari kona Jóns, (21. nóvember 1825), var Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurgarði, f. 26. nóvember 1799, d. 29. nóvember 1883.
Börn Jóns og Ingibjargar hér:
3. Valgerður Jónsdóttir, f. 16. apríl 1827, d. 6. ágúst 1827 „af Barnaveikindum“, (mun vera ginklofi).
4. Þorgerður Jónsdóttir, f. 21. mars 1829, d. 30. mars 1829 úr ginklofa.
5. Kristín Jónsdóttir, f. 26. júní 1830, d. 1. júlí 1830 úr ginklofa.
6. Jóhanna Jónsdóttir, f. 9. júní 1831, d. 22. júní 1831 úr ginklofa.
7. Valgerður Jónsdóttir, f. 20. ágúst 1832, d. 7. október 1897 Vestanhafs. Hún var tvíburi.
8. Ingibjörg Jónsdóttir, f. 20. ágúst 1832, d. 23. ágúst 1832 úr ginklofa. Hún var tvíburi.
9. Sigríður Jónsdóttir, f. 13. nóvember 1835, d. 20. nóvember 1835 úr ginklofa.
10. Guðrún Jónsdóttir, f. 3. maí 1837, d. 11. maí 1837 úr ginklofa.
11. Jón Jónsson, f. 10. október 1841, d. 22. október 1841 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók II – Ásahreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Ásahreppur 2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.