Jón Einarsson (Hlaðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Einarsson bóndi í Ysta-Skála u. Eyjafjöllum, síðast hjá Halldóru dóttur sinni í Hlaðbæ, fæddist 14. apríl 1838 og lést 12. ágúst 1926.
Foreldrar hans voru Einar Sighvatsson bóndi, hreppstjóri, meðhjálpari og dannebrogsmaður í Ysta-Skála, f. 19. júní 1792, d. 14. desember 1878, og kona hans Arnlaug Sveinsdóttir húsfreyja, f. 19. mars 1796, d. 25. júlí 1866.

Jón var með fjölskyldu sinni í Ysta-Skála 1840 og enn 1860. Hann var vinnumaður hjá 78 ára ekklinum föður sínum 1870, en Arnlaug móðir hans hafði látist 1866. Bústýra var Arnlaug dóttir Einars bónda, 40 ára ekkja með 2 börn sín.
Jón var kvæntur bóndi í Ysta-Skála 1880 með Kristínu konu sinni 41 árs og börnunum Halldóru 5 ára, Gísla 3 ára og Sveini 2 ára. Þau voru öll í Ysta-Skála 1890. Þau voru þar enn 1901 með Gísla og Sveini sonum sínum og fósturdóttur sinni Kristínu Magnúsdóttur 14 ára, en Halldóra hafði flust til Eyja á því ári.
Þau Kristín fluttust frá Ysta-Skála til Eyja 1908. Þar stundaði Jón áburðarflutninga fyrir fólk, einnig garðrækt og frærækt. Þau hjón voru síðan í skjóli Halldóru og Bjarna í Hlaðbæ.
Kristín lést 1924, en Jón 1926.

ctr


Hjónin Jón Einarsson og Kristín Björnsdóttir


Kona Jóns Einarssonar, (14. júní 1873), var Kristín Björnsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1839, d. 19. mars 1924.
Börn þeirra hér:
1. Halldóra Jónsdóttir húsfreyja í Hlaðbæ, f. 28. febrúar 1875, d. 2. júní 1942.
2. Gísli Jónsson bóndi í Ysta-Skála, f. 7. nóvember 1876, d. 28. september 1950.
3. Sveinn Jónsson formaður á Landamótum, f. 1. desember 1877, d. 12. október 1978.
4. Björn Jónsson, f. 1. desember 1877, d. 12. desember 1877.
Fósturdóttir þeirra var
5. Kristín Magnúsdóttir, síðar húsfreyja í Vallnatúni u. Eyjafjöllum, f. 12. febrúar 1887, d. 7. ágúst 1975.
Sjá einnig: Blik 1978, Þrír ættliðir, II. hluti


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.