Jónína Helga Árnadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jónína Helga Árnadóttir.

Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík fæddist 6. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17 og lést 7. desember 2009.
Foreldrar hennar voru Árni Magnússon sjómaður í Eyjum, síðar bóndi á Kröggólfsstöðum í Ölfusi og sjómaður í Þorlákshöfn, f. 26. febrúar 1902 að Steinum u. Eyjafjöllum, d. 1. október 1961 í Þorlákshöfn, og kona hans Helga Sveinsdóttir húsfreyja og bóndi, f. 10. ágúst 1900 í Framnesi á Eyrarbakka, d. 2. ágúst 1974 í Reykjavík .

Börn Helgu og Árna voru:
1. Sigurður Kristján Árnason húsasmíðameistari, listmálari, f. 20. september 1925 á Bergstöðum.
2. Ragnar Guðbjartur Árnason verkamaður í Þorlákshöfn, f. 24. september 1926 á Bergstöðum, d. 31. desember 2004.
3. Magnús Sveinberg Árnason, f. 17. apríl 1929 í Langa-Hvammi, (Magnús Sveinbjörn, f. 24. apríl, segir Magnea systir hans), d. 16. febrúar 1930.
4. Magnea Sveinbjörg Árnadóttir húsfreyja, ættfræðingur, f. 12. september 1930 í Skálanesi.
5. Sigrún Árnadóttir öryrki, f. 25. janúar 1932 í Varmadal, d. 15. janúar 2004.
6. Jónína Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 7. ágúst 1935 á Hásteinsvegi 17, d. 7. desember 2009.
7. Ragnhildur Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. ágúst 1938 í Reykjavík, d. 14. janúar 2013.

Jónína Helga var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim á Hásteinsvegi 17 (Fjósinu) 1935.
Hún fluttist með þeim til Reykjavíkur 1937 og að Kröggólfsstöðum í Ölfusi 1942.
Hún giftist Sverri 1960 og eignaðist með honum tvö börn. Þau Sverrir skildu.

I. Maður Jónínu Helgu, (1960), var Sverrir Úlfsson bifreiðastjóri, f. 9. nóvember 1937 á Úllfljótsvatni, d. 3. desember 2014.
Börn þeirra:
1. Ragna Sverrisdóttir húsfreyja á Beigalda í Borgarfirði, póstafgreiðslumaður í Borgarnesi, f. 14. mars 1961. Maður hennar: Guðmundur Árnason húsasmiður frá Beigalda.
2. Kolbeinn Sverrisson raftæknir í Reykjavík, f. 2. janúar 1967. Kona hans: Þóranna Halldórsdóttir húsfreyja, þroskaþjálfi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.
  • Ölfusingar - búendatal Ölfushrepps 1703-1980. Eiríkur Einarsson. Reykjavík. Sögusteinn 1985.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.