Jóhanna Guðrún Jónsdóttir (Þorlaugargerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, ráðgjafi fæddist 20. desember 1942 í Þorlaugargerði og lést 8. mars 2022 á Droplaugarstöðum.
Foreldrar hennar voru Jón Magnússon skipstjóri frá Hofi í Eyjum, f. 28. mars 1906, d. 13. febrúar 1983, og síðari kona hans Karólína Guðrún Maríasdóttir húsfreyja frá Kjós í Grunnavíkurhreppi, f. 19. júní 1914, d. 19. febrúar 2005.

Jóhanna Guðrún var með foreldrum sínum í Eyjum og Reykjavík, flutti 17 ára til Eyja, var húsfreyja í Eyjum, flutti til Selfoss 1982, síðan til Reykjavík. Hún bjó 7 ár í Svíþjóð, menntaðist þar í fjölskylduráðgjöf. Þaðan flutti hún til Reykjavíkur. Hún var ráðgjafi hjá SÁÁ, var forstöðumaður Dyngjunnar um skeið, en stundaði síðan ráðgjafarstörf á eigin vegum.
Jóhanna tók ríkan þátt í starfsemi Leikfélags Vestmannaeyja og síðar í leikstarfsemi í Reykjavík.
Þau Erling giftu sig 1962, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu fyrst á Austurvegi 22, þá á Heiðarvegi 20, síðan á Ásavegi 12. Þá keyptu þau húsið Hásteinsveg 32. Þau byggðu húsið Höfðaveg 36 1972 og bjuggu þar til Goss.
Hjónin sneru aftur að Höfðavegi 32 um haustið 1973 og bjuggu þar til 1982, er þau fluttu á Selfoss og þar bjuggu þau til 1987, er þau skildu samvistir.
Þau Stefán giftu sig 2002, en slitu samvistir.

Jóhanna Guðrún var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (12. maí 1962, skildu), var Sigurður Erling Pétursson skipstjóri, f. 25. október 1942 í Fagradal í Mýrdal.
Börn þeirra:
1. Pétur Erlingsson sjómaður á Sauðárkróki og nú skipstjóri á Gullhólmi frá Grundarfirði, f. 17. nóvember 1961 í Reykjavík. Kona hans er Aðalbjörg Anna Gunnarsdóttir verslunarmaður, f. 19. júlí 1965.
2. Guðrún Erlingsdóttir húsfreyja, bæjarfulltrúi í Eyjum, verkalýðsleiðtogi, varaþingmaður, BA-atvinnulífsfræðingur, blaðamaður, f. 18. október 1962 í Eyjum. Maður hennar er Gylfi Sigurðsson trésmiður, f. 26. janúar 1959.
3. Erling Erlingsson framreiðslumaður, sjómaður í Reykjavík, skipstjóri á Steinunni frá Höfn, f. 25. október 1965 í Eyjum. Kona hans er Arnheiður Edda Rafnsdóttir bankastarfsmaður, f. 9. maí 1965.
4. Berglind Erlingsdóttir húsfreyja, matartæknir, mannfræðingur, f. 15. desember 1974 í Eyjum, búsett í Portland í Oregon í Bandaríkjunum. Maður hennar er dr. Styrmir Sigurjónsson verkfræðingur, f. 14. apríl 1974. Hann vinnur við líftækni. Hann er sonarsonur Jóhönnu Sigurjónsdóttur Sigurðssonar frá Þingeyri.

II. Síðari maður Jóhönnu Guðrúnar, (20. desember 2002, skildu), var Stefán Jóhannsson, f. 3. ágúst 1935.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.